Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Síða 72
70
við mannslátin. Krabhainein þessara sjúklinga skiptast þannig niður
eftir líffærum:
Ca. labii ..................................... 3
— faciei ..................................... 1
— maxillae ................................... 1
— gland. thyreoidei .......................... 1
— gland. submaxillaris ....................... 1
—• mammae ..................................... 3
— en cuirasse ............................... 1
— oesophagi ................................. (5
— hepatis .................................... 2
— ventriculi ................................ 47 (58%)
— intestini .................................. 3
— coli ....................................... 5
— renis ...................................... 1
— uteri ...................................... 3
-—- recti ..................................... 3
Auk þessa er aðeins getið um eitt sarkmein: Sa. colli.
Hér eru taldir frá þeir sjúkk, sein aðgerð hafa fengið fyrr en á
þessu ári og læknar telja albata.
Á sjúkrahúsunum hafa legið samtals 146 marins með krabbamein
og önnur illkynjuð æxli, þar með talin heilaæxli.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. Krabbamein ágerast.
Skipaskaga 2 sjúklingar, aldraðar konur, önnur ineð ca. oesophagi
& hypopharyngis og hin með ca. oesophagi.
Borgarnes. Gruna einn gamlan sjúkling. Ekkert mannslát af krabba-
meinsvöldum þetta ár, svo að ég viti.
Reykhóla. Kona, 51 árs, með ca. hepat. & vesic. fell. & ventriculi.
Flateyrar. 2 karlmenn milli 50 og 60 ára létust vegna krabba-
meins á árinu. Annar þeirra hafði ca. oesophagi, en hinn ca. ventriculi.
ísafi. 6 sjúklingar með krabbamein, og dóu 5 þeirra á árinu.
Ögur. Ein kona, 73 ára, með ca. ventriculi, inoperabilis þegar mín
var vitjað, enda dó hún tæpum mánuði síðar.
Reijkjarfi. 19 ára gömul stúlka fékk æxli á hnakkann, vaxið við
bein, sem stækkaði ört, varð meira en kaffibolla stórt og reyndist
sarkmein. Dó eftir uppskurð á Landspítalanum.
Hólmavíkur. Einn maður deyr úr ca. ventriculi. Hefir fallið af skrá.
Miðfi. 5 sjúklingar eru á mánaðarskrám, en einn af þeim er tekinn
með frá síðustu ársskýrslum, og eru því 4 nýir sjúklingar, 3 með
ca. ventriculi og einn með ca. coli. 3 af sjúklingunum eru dánir, 2
skornir upp í heimahúsum, en einn dó eftir uppskurð í Reykjavik.
2 sjúklingar frá fvrra ári einnig dánir.
Blönduós. Lítið borið á krabbameini þetta ár, eins og 1934, — að-
eins einn sjúklingur. Hann dó úr ca. ventriculi utanhéraðs.
Hofsós. 5 nýir sjúklingar.
Ólafsfi. Engin illkynja æxli hefi ég orðið var við á árinu.
Svarfdsela. 3 sjúklingar á krabbameinaskýrslu 1934 lifðu í árs-