Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 11
9
héráð, þar sem flestir bátar, sem héðan stunda fiskveiðar, eru aust-
firzkir. Að sjálfsögðu dregur það nokkuð úr atvinnu Hafnarbúa og
einnig sveitamanna, sem leita sér atvinnu hér á vertíð. Afkoma hænda
fer heldur hatnandi, einkum í Nesjuin og á Mýrum, aðallega vegna
kartöfluræktar, sem þar hefir aukizt mjög.
Síðu. Afkoma bændanna er á þá Ieið, að flestir berjast í bökkum.
Mýrdals. Fénaðarhöld í allra bezta lagi. Sjávarafli sama sem eng-
inn. Atvinna minni en undanfarin ár.
Vestmannaeyja. Almenn afkoma þetta verst, síðan ég kom í héraðið.
Viðurværi manna er þó yfirleitt sæmilegt.
Rangár. Afkoma alls þorra bænda mjög sæmileg og má teljast ágæt,
miðað við undanfarandi ár. Þetta ár bezta búskaparár síðan 1929
hér um slóðir, og stuðlar margt að því. í fvrsta lagi gott tíðarfar og
hækkandi verð á afurðum, svo sem kjöti og þó sérstaklega mjólk, og
auk þess bar þetta ár mjög lítið á ormaveiki í sauðfé og kartöflusýki,
en þetta hvorttveggja hefir valdið stórtjóni hjá fjölda bænda undan-
farandi ár.
Eyrarbakka. Afkoma héraðsbúa mun hafa verið betri en árið á
undan, og áreiðanlega liefir hvergi verið skortur á nauðsynjum til
fæðis og klæða, svo að af því gæti stafað sjúkleiki.
Grimsnes. Árferði með bezta móti. Afkoma almenning's ætti því að
vera góð, en þar koma til greina skuldir frá fyrri árum og erfið verzl-
un. Skortur þekkist hér hvergi.
Keflavikur. Afkoma manna mun lakari en undanfarin ár.
II. Fólksfjöldi, barnkoma og' manndauði.1)
Fólksfjöldinn á öllu landinu í árslok 1935 var 115870 (114743 i
árslok 1934).2)
Lifandi fæddust 2551 (2597) börn eða 22,1 %c (22,8(L).
Andvana fæddust 57 (56) börn eða 21,5%c (21,1%C) fæddra.
Manndauði á öllu landinu var 1402 (1181) menn eða 12,2%c (10,4^c).
A í. ári dóu 173 (136) hörn eða G7,8%c (52,4%c) lifandi fæddra.
Hjónavigslur voru 710 (731) eða 6,2fcc (8,4%c).
/ Reykjavik var mannfjöldinn í árslok 34231 (32974).
Dánarorsakir eru samkvæmt dánarskýrslum sem hér segir:
Farsóttir:
Kverkahólga (angina tonsillaris) .......... 1
Kvefsótt (catarrhus respiratorius acutus) .... 1
Barnaveiki (diphtheria) ........................... 4
Barnsfararsótt (febris pnerperalis) ............... 3
Gigtsótt (febris rheumatica) ...................... 2
Taugaveiki (febris typhoidea) .................... 1
Inflúenza ........................................ 23
1) Eftir upplýsingum Hagstofunnar.
2) Um fólksfjölda í einstökum héruðum sjá töflu I.
2