Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 50
48
haki og fótum. Pat. reflexar næstum horfnir hjá einum pilti. Engar
lamanir.
Húsavíkur. Um mánaðamótin sejit.—okt. kom mænusótt hingað
með flóabátnum, er kom frá Akureyri. Var einn skipsmanna orðinn
lasinn þegar hann var hér við bryggju, og mun hafa dáið nokkrum
dögum síðar. Þeir, sem smituðust hér af þorpsbúum, voru aðallega
börn og' aðflutt fólk, enda hefir hún verið hér á ferð meira og minna
síðan 1924 og þó mest 1932 af seinni faröldrum. Ég er alltaf að sann-
færast betur um það, að þessi rauðbláa hula i kverkum og koki er
sérkennilegt einkenni hennar. Til Grímseyjar mun veikin hafa borizt
um sama leyti og' hingað, en þangað var læknis ekki vitjað. Eftir því
sem ég gat haft gleggstar fregnir af, er víst, að 15 manns veiktust
meira eða minna af henni þar, og komu þar fyrir 3 lamanir.
Öxarfj. Héraðslæknir hefir samið ýtarlega og eftirtektarverða grein-
argerð um mænusóttina i héraði sínu, og er sá kafli úr skýrslu hans
birtur sem fylgirit með þessu hefti Heilbrigðisskýrslnanna.
Fljótsdals. Varð fyrst vart á einum bæ í Skriðdal. Veikina fengu
2 bræður, annar abortivt tilfelli, hinn fékk talsverðar lamanir á
handleggjum og fingrum, en er j)ó vinnufær nú (bókhaldari). Stúlka
frá næsta bæ var stödd þar, þegar bræðurnir veiktust, og fékk abortivt
tilfelli. í desember komu svo aftur 3 tilfelli, þar af 2 með al-
varlegum lömunum. Bóndi í Vallahreppi lainaðist algerlega á fótum,
og kona í Skriðdal fékk samskonar lamanir. Eg heyrði þess getið,
að um svipað leyti hefði hitaveiki með miklu máttleysi verið að stinga
sér niður á þessum slóðum. Má vera, að verið hafi mænusótt.
Seyðisfi. 28 ára karhnaður var lagður inn á sjúkrahúsið í okt.,
eftir að liafa legið í hálfan mánuð heima. Voru þá báðir handleggir
paretiskir. Sjúklingurinn var frá Reyðarfirði, en ekki er mér kunnugt
um, hvort nokkur hefir smitazt af honum.
Reyðarfj. 4 tilfelli í desember, 3 væg. Lamana varð aðeins vart í
fótum, en hurfn fljótt. Eitt tilfclli, 29 ára karlmaður, Iá allþungt
haldinn, lamaðist á öxl og handlegg vinstra megin og brjótsvöðvum
lítilsháttar. Hefir náð sér.
Rangár. Ein teljía í Lunansholti í Landsveit veiktist af mænusótt
í nóv'ember. Varð mikið veik og annar fótur lamaður. Uppruni alger-
jega óviss. Telpan aldrei farið neitt af heimilinu, og engrar mænu-
sóttar orðið vart í þessari sveit síðustu (i ár. Samgönguvarúð var
höfð við heimilið í 3 vikur, og systkinum hennar bönnuð skóla-
vist fram í marz.
Eijrarbakka. Mænusóttin kom fyrir siðast í nóvembermánuði á
2 bæjum í Hraungerðishreppi, á Hrygg á 16 ára stúlku og 1"
ára pilti og í Oddgeirshóla-Austurkoti á 14 ára j)ilti. Það revndist
ómögulegt að rekja, hvernig veikin hefir borizt á þau. Þess má þó
geta, að þau eru öll systkini, og eiga öll heima á Hrygg hjá foreldi'-
um sínum þar, en yngri pilturinn hafði verið lánaður til hjálpar að
Austurkoti um tíma. Stúlkan dó eftir mjög stutta legu, en drengirnir
virðast ætla að ná fullum bata aftur. Eftir að kunnugt varð um veik-
ina, var höfð varúð á samgöngum við bæina 3—4 vikur.
Grímsnes. Mænusótt barst hingað frá Reykjavík í ágústmánuði með
i