Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 108
106
Læknar láta þessa getið :
Skipnskaga. Sjúkraskýlismálinu hefir verið haldið vakandi. Á þessu
ári starfaði 5 manna nefnd til að þoka málinu áleiðis. Skipulags-
nefndin hefir nú loksins ákveðið staðinn, þar sem það skal standa.
Nefndin lét gera uppdrátt af skýli yfir 14 sjúklinga og kostnaðar-
áætlun. Sjóður skýlisins er nú ca. 25 þúsund krónur.
Stijkkishólms. Á árinu hefir að mestu verið gengið frá sjúkrahúsi
kaþólska trúboðsins. Húsið sjálft er fullgert, hæði að utan og innan,
en frá ýmsu innan húss er enn þá óg'engið, svo sem röntgen- og' ljós-
lækningatækjum. Þau hafa þegar leg'ið hér í tæp 2 ár. Eins og' ég
gat um í aðalskýrslu minni fyrir árið 1933, átti Stykkishólmshreppur
að sjá sjúkrahúsinu fyrir ókeypis rafmagni til ljósa og smá-áhalda.
Síðan varð báðum aðilum Ijóst, að hreppurinn mundi ekki geta staðið
við þenna samning nema með því að reisa nýja rafstöð. Hann var því
leystur undan þessari kvöð, en skuldbatt sig jafnframt til að leggja
sína gömlu stöð niður og kaupa allt rafmagn til ljósa og annarar
notkunar í þorpinu af Ijósastöð sjúkrahússins, er hún tæki til starfa,
sem hún og gerði 1. des. síðastl. Hreppurinn kaupi rafmagnið til ljósa
fyrir 60 aura kwst., en selur það til hreppsbúa fyrir kr. 1,15. Jafn-
framt annist hreppurinn viðhald og endurbætur á ljósakerfi bæjar-
ins fyrir eiginn reikning, innheimti ljósag'jöldin og beri ábyrgð á
skilvísri greiðslu þeirra, allt þetta sjúkrahúsinu að kostnaðarlausu og
án tillits til þess, hvernig innheimtan gengur, 7 nunnur eru nú í
sjúkrahúsinu, og prest hafa þær sér til sáluhjálpar. Húsið er hið
prýðilegasta og rúmgott, vel fyrir flestu séð og geymslurúm allmikið
á efstu hæð. Hvenær sjúkrahúsið tekur til starfa og hvernig hagað
verður rekstursfyrirkomulagi veit ég ekki.
Þingeyrar. Brunabótafélagið Verðandi í Þingeyrarhreppi hætti störf-
um fyrir nokkrum árum. Átti það allríflegan sjóð. Gaf það sjúkra-
húsinu á þessu ári vandað röntgentæki, Culinax V, og' varði nokkrum
hluta sjóðs síns til kaupa á því. Hefir sýslunefnd ákveðið að kaupa
pneumothoraxáhald í því skyni, að sem mest gagn geti orðið að
tækinu. Töluverðar breytingar þurfti að gera á herbergjum í sam-
bandi við tækið. Aðrar umbætur hafa ekki átt sér stað.
Flateyrar. Sjúkraskýlissjóður Flateyrarhrepps er nú orðin ca.
3 þúsund kr.
tsafj. Á sjúkrahúsinu hafa legið samtals 391 sjúklingur. Af þeim eru
245 innan héraðs (ísafjörður og Evrarhreppur) og 146, eða 37%,
utan héraðs.
Sauðárkróks. Hin nýju röntgentæki hafa reynzt sæmilega, en þó
tæplega nógu Ijóssterk til þess að taka augnabilksmyndir af inn-
vortis líffærum, t. d. maga. Ljóslækningatækin (kvartsljós með sollux-
hunpa) hafa verið allmikið notuð af sjúklingum utan sjúkrahússins.
Helztu tilefni hafa vcrið þessi: Pleuritis chronica 7, adenitis 5, rachitis
11, arthroitis chronica 5, adenopatia interna 15, anaemia 19, fractura
et sequele 1, alls 63.
Blönduós. Allmikil aðsókn var að röntgentælcjum og Ijóslækninga-
tækjum spítalans. Fenginn var túnblettur í nánd við sjúkrahúsið,
en þó á afskekktum stað, og var þar reist sólbaðsskýli fyrir sjúldinga.