Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 144
142
bólusetningu kom þannig bóla ekki út nema á 106 af 1199 bólusettum
eða á 9%. Hins vegar var betri útlcoma á endurbólusettum börnum,
þar sem 1020 eru talin bólusett með árangri af 2984 bólusettum eða
34%. Er að vísu ástæða til að draga í efa árangurinn af cndurbólu-
setningunni, þegar i ýmsum héruðum kemur ekki bóla út á neinu
frumbólusettu barni, cn hins vegar á allt að 100% af hinum endur-
bólusettu. Og mun íslenzkir bólusetjarar yfirleitt dæma og hafa dæmt
nokkuð frjálslega um árangur endurbólusetningar.
Um nauðsyn almennrar bólusetningar, eins og sóttvarnarmálum er
nú almennt komið, eru skiptar skoðanir. og leggja ýmsir til, að þær
séu lagðar niður. Ekki ættum vér íslendingar að standa hér verst að
vígi, og' verður þetta mál tekið til athugunar.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskagn. Vegna kikhósta og mænusóttar fór ekki almenn frum-
bólusetning fram í Akranesbólusetningarumdæmi.
Borgarnes. Bólusetningar hafa farið fram í flestum hreppum, en
bóluefni reynist misjafnlega. Eg legg til, að bólusett sé í þessum sveita-
héruðum aðeins 3.—4. hvert ár, en þá sé það gert rækilega og helzt
af lækni. Bólusetjarar kvarta undan, að bólan hafi ekki komið út á
börnunum síðastliðið ár.
Flateyjar. Héraðslæknir bóusetti í Flateyjarhreppi. Það var gert i
byrjun sept. og í ágústlok vegna kikhóstans, og mun bóluefnið þá
hafa verið orðið ónýtt, enda kom hvergi bóla út.
Ögur. Bólusetningar fóru ekki fram i Nauteyrar- og Súðavíkur-
hreppuin, vegna kikhósta.
Blönduós. Bólusetningar fóru alveg út um þúfur að þessu sinni vegna
kikhóstans. Þó voru öll fermingarbörn bólusett.
Sauðárkróks. Bólusetning fórst fyrir, vegna þess að kikhósti gekk
yfir á þeim tíma, þegar bólusetning venjulega fer fram.
Ólafsfj. Öll börn, sem aldur höfðu til þess, voru eins og áður bólu-
sett í ár. Bólusetjari segir, að bóla hafi ekki komið út á neinu frum-
bólusettu barni og kennir bóluefninu um. Hinsvegar hafi bóla komið
út á öllum endurbólusettum börnum.
Svarfdæla. Bólusetningar fóru fram í öllu héraðinu, en bóluefnið
ónýtt. Að vísu er talið, að bóla hafi komið út á endurbólusettum
hörnum, en héraðslæknir dregur mjög í efa, að rétt hafi verið metið.
Húsavikur. Vegna kikhósta var ekki bólusett í héraðinu, nema í
Flatey, en þar kom ekki út bóla á neinu barni, hverju sein um er að
kenna.
Þistilfj. Bólusetningar munu að mestu hafa niður fallið þetta ár
vegna kikhóstans.
Hróarstungu. Bólusetningar féllu hér alveg niður nema í einum
hreppi, þar sem búið var að Ijúka þeim af áður en kikhóstafaraldur-
inn fór að gang'a yfir.
Berufj. Bólusetningar fóru fram, líkt og áður, í 2 umdæmum.
Hornafj. Mikil vanhöld urðu á bólusetningum á þessu ári, vegna ým-
issa umgang'skvilla. Auk þess leggur ahnenningur lítið orðið upp
úr þeim.