Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 80
7<S
tekin „undir kúr“ og hreinsuð. Hjá 60 sveitabörnum, sem skoðuð
voru, fundust þessir lcvillar: Tannskemmdir 41, nit 10, eitlaþroti 6,
kokeitlaþroti 2, heyrnardeyfa 1.
Borgarfj. Heilsufar barnanna var gott og engu vísað frá kennslu.
Borgarnes. Börnin voru yfirleitt frísk, og engar pestir koinu upp í
skólunum og engin veruleg slys. Hreinlætið virðist aukast, en mikið
er enn um tannskemmdir og kirtlaþrota eða -auka í hálsi og nefi.
Af skólabörnum í Borgarnesi (36 ails) virðast 9 hafa gallaða sjón.
Var augnlæknir fenginn úr Reykjavík til að athuga þau og' bæta úr
eftir föngum. Á nokkrum börnuin var vottur af hryggskekkju (2—3
hörn). Nokkur börn höfðu ófullkomna heyrn. Fáein voru veikluleg og
blóðlítil. Var athygli aðstandenda vakin á því og ráð gefin.
Ólafsvíkur. Af öðrum kvillum en greindir eru á skránni er þessara
að geta (208 börn alls): Blóðleysi hjá 14 börnum, hryggskekkja 5,
eitlaþrota á hálsi 88, stækkaðar tonsillae 33, sjónargallar 21, hevrnar-
deyfa 12, otitis 1, ekzema 1, morbus cordis 1.
Stykkishólms. Það er hálfgert vandræðamál, hvar draga skuli
markalínu milli heilbrigðra og sjúkra kokeitla. Ég hefi haldið þeirri
reglu að telja kokeitlaauka þegar tons., önnur eða báðar, skaga út
fyrir bogana. En þó ber einnig að líta á útlit þeirra og taka tillit til
þess. Kirtlaþroti undir hökubörðum er líka nokkurt álitamál oft og
tíðum. Fölleit og mögur börn hefi ég alltaf tilhneigingu til að draga
í dilk með berklaveiku fólki, en eigi sízt, ef þau hafa bólgna kirtla á
hálsi. En málið vandast allmikið, þegar blessuð börnin opna munn-
inn og allar skemmdu tennurnar blasa við.
Flateyjar. Börnin yfirleitt all-hraust (36 börn alls). Eitlaþroti 17,
tonsillo-pharyngitis 17, munnöndun 1 (nefþrengsli), skakkbak 7, nit
13, nit og lús 3, kviðslit 1, thorax paralyticus 1, trektarbrjóst 1,
vestigia rachitidis 1, sjóngalli 1 (gleraugu bættu sjón), heyrnar-
galli 1.
Patreksfj. Eitlaþroti 56 (130 börn alls) eitlingaauki 31, skakkbak
(lítilsháttar) 5, verrucae 14, onychomycosis 3, paresis p. poliomyelit. 1,
herpes zoster 2, poliosis circumscript. 1, blepharoconjunctivitis 1.
Bíldudals. Öll börn talin skólatæk heilsunnar vegna. Tannskemmd-
ir sem fyrr mest áberandi, jafnt í kauptúni sem í sveitum. Á óþrifa-
kvillum ber ekki mikið. Þó finnst nit í einstaka barni. Hefir líklega
verið reynt að útrýma lúsinni, áður en læknirinn skoðaði kollana.
Nokkuð ber á scoliosis. 2 systkini hafa ichtyosis, og 3 önnur systkini
eru svo málhölt, að illt er að skilja mál þeirra. Öll í Bildudal.
Hóls. 2 börn þóttist ég ekki í vafa um að voru berklaveik. Ann-
ars virðist töluvert bera á því, að börn veikist hér, ung og gömul, á
ýmsum aldri, ineð langvinnum sótthita og lystarleysi, blóðleysi, án
hósta eða annara sýnilegra berklaeinkenna. Við gegnlýsingu reynist
sumt af þessu tubercul. hiluskirtlar.
ísafj. Mér finnst sorglegt, hve illa gengur að útrýma lúsinni. Við
höfum 2 síðustu ár gert sérstaka árás á hana, en niðurstaðan verður
alltaf hin sama. Síðustu 2 árin fékk hver krakki, sem var lúsugur,
miða með sér heim til foreldranna, og var jafnframt bent á, að skól-
inn legði til ókeypis meðul til aflúsunar. Margir sóttu lyf handa börn-