Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 105
103
U m 1) 1 i n (1 a :
Hornafi. Blindir eru 17, flesl af glaueoma, sejn augnlæknar segja
algengara hér en víðast annarsstaðar.
U m deyfilyfjaneytendur:
Ólafsfj. Einn deyfilyfjaneytandi er í héraðinu, sá sami og áður
hefir verið. Þrátt fyrir ópíumát nú í ein 30 ár, upp í 3 grm. af tct.
thebaic., virðist hún ætla að verða kerlinga elzt. Sjálf veit hún ekkert,
hvað gömul hún er, og þær kirkjubækur, sem næst í, gefa um það
ófullnægjandi og ósamhljóða upplýsingar, en eftir því, hvenær hún
giftist og eftir því, hve börn hennar eru gömul, þá er hvin komin hátt
á tíræðisaldur.
VII. Ýms heilbrigðismál.
1. Heilbrigðislöggjöf 1935.
.4 árinu voru sett þessi Iög, sem til heilbrigðislöggjafar geta talizt:
1. Lög nr. 1, 7. jan. 1935 um meðferð og sölu mjólkur og rjóma o. fl.
2. Áfengislög nr. 33, 9. jan. 1935.
3. Lög nr. 37, 28. jan. 1935 um heimild rannsóknarstofnana ríkis-
ins til lyfjasölu í sambandi við rannsóknir sínar.
4. Lög nr. 38, 28. jan. 1935 um leiðbeiningar fyrir konur um varnir
gegn því að verða barnshafandi og um fóstureyðingar.
5. Lög nr. 61, 28. jan. 1935 um breyting á lögum nr. 32, 19. júní
1933 um tilbúning og verzlun með sinjörlíki o. fl.
6. Tilskipun nr. 81, 26. apríl 1935 um lyf og læknisáhöld í íslenzk-
um skipum.
7. Lög nr. 93, 3. maí 1935 um eftirlit með skipum.
8. Lög nr. 94, 3. maí 1935 um brevting á Iögum nr. 79, 14. nóv.
1917 um samþykktir um lokunartíma sölubúða í kaupstöðum.
9. Lög nr. 102, 3. maí 1935 um viðauka við lög nr. 24, 7. maí 1928,
um eftirlit með verksmiðjum og vélum.
10. Framfærslulög nr. 135, 31. des. 1935.
Ráðherra gaf út:
Auglýsing (25. júní) um að ísland hafi gengið að alþjóðasamningi
um bætta aðstöðu sjómanna á verzlunarskipum til þess að fá læknis-
hjálp við kynsjúkdómum, og var samþykktin þar um birt í íslenzkri
þýðingu.
Þessar reglugerðir varðandi heilbrigðismál voru gefnar út af stjórn-
arráðinu:
1. Bráðabirgðareglugerð um framleiðslu, meðferð og sölu mjólkur
(15. jan.).
2. Reglugerð um sölu og' veitingar áfengis, er um ræðir í lögum
nr. 33, 9. janúar 1935 og löguin nr. 3, 4. apríl 1923. (30. jan.).
3. Reglugerð um barnavfernd í Ytra-Akranesskólahéraði (15. febr.).
4. Reglugerð um barnavernd í Hafnarfjarðarkaupstað (4. marz).
5. Reglug'erð um frainleiðslu, meðferð og sölu mjólkur og rjóma
o. fl. (15. marz).