Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 133
131
því, svo að vöðvarnir „atrofieri“ ekki alveg í hinni vaxandi véla-
menningu.
Skipaskaga. Yfir íþróttalífinu er hér fremur dauft, enda ekki við
miklu að húast, meðan ekkert er leikfimishúsið. En því máli hefir
þó það þokað áfram, að byrjað er að grafa fyrir grunni þess, mest með
gjafavinnu áhugasamra æskumanna. Knattspyrnufélögin sýna listir
sínar einstaka sinnum á sumrin, en æfingar hjá þeim eru stopular.
Nýjan knattspyrnuvöll hafa þau látið gera, sem mun vera sæmilega
góður. Sundskálinn var talsvert notaður í sumar, en flestir fengu sér
bað og syntu í sjónum fram undan svokölluðum Langasandi, sem er
ágætur bæði sem baðstaður og til sólbaða. Eins og undanfarin ár
fóru 2 flokkar drengja og stúlkna úr barnaskóla Akraness til sund-
námskeiðs í Reykholti o.g nutu til þess styrks úr hreppssjóði.
Borgaífj. Sundnámskeið voru haldin í Reykholti eftir að skóla var
slitið. Útiíþróttir eru iðkaðar nokkuð, einkum hlaup og knattspyrna,
en glímur lítið. Fjölsótt íþróttamót er haldið á hverju vori.
Rorgarnes. Íþróttalíf er hér ekki fjölskrúðugt. Einhver leikfimi er
stundum kennd i barnaskólanum hér i Rorgarnesi, en ekki í sveitun-
um, og sjaldan sé ég fólk að leikjum, að undanteknum dansinum, sem
tíðkast hér í öllum myndum. Sund læra nokkrir unglingar á vorin í
sundlaugunum uppi í Borgarfirði. Engin sundlaug — því miður —
í mínu héraði, svo að ég viti.
Bíldudals. Inni í Suðurfjörðum er jörðin Reykjarfjörður. Þar eru
heitar uppsprettur. Hafa þær verið notaðar til þvotta og jarðvegurinn
i kring til garðræktar. Nú hefir ungmennafélag hér í Bíldudal hlaðið
þar upp sundlaug og veitt heitu vatni í hana og notað til sundkennslu
síðastliðið sumar.
Þingeyrar. Fimleikakennsla hefir verið haldið uppi af íþróttafélagi
Þingeyrar fyrir karla og konur. Hafa íþróttir talsvert verið stundaðar
af yngra fólki. Skíðaferðir hafa verið iðkaðar með meira móti. Sund-
kennsla fór fram vor og' haust í kjallaralaug við héraðsskólann á
Núpi. Auk þess iðka nemendur skólans sund allan veturinn. Laugin
er hituð með rafmagni.
Hóls. Sundlaug er hér með skýli. Var hún notuð síðastliðið sumar
af allmörgum unglingum. Er þetta helzta sýnilega þrifnaðar- og
menningarmerki hér í þorpinu.
Ögur. Kennt er sund og íþróttir í Reykjanesi, bæði við skólann og á
sérstökum námskeiðum. Áhugi er mjög góður fyrir hvorutveggja.
Hestegrar. Barnaskólaleikfimi, — annað ekki.
Miðfi. íþróttaáhugi er nokkur, og hefir verið haldið uppi leikfimis-
kennslu hér um tíma í vetur. Útiíþróttir eru einnig nokkuð stundaðar.
Blönduós. íþróttalíf er hér sáralítið. Þó fer fram sundkennsla á
hverju vori í steyptri sundlaug á Reykjum á Reykjabraut, og' fer að-
sókn að henni vaxandi. Flestir barnakennarar hafa að tilstuðlan
minni tekið upp einfaldar líkamsæfingar í skólunum.
Svarfdæla. Sund var kennt í sundskálanum í Svarfaðardal, eins og
að undanförnu, aðsókn svipuð og í fyrra. Knattspyrna er mikið iðk-
uð á sumrin, skíða- og skautaferðir dálítið á vetrum, en til muna
minna en tiðkaðist fyrir 1--2 árum. Mun það vera nokkuð því að