Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 142
140
fullgert enn. Er þar særnileg miðstöðvarhitun. í Borgarhreppi er líka
samkomuhús, senr jafnframt er notað fyrir skólahús. Þar er einnig
miðstöðvarhitun. I hinum hreppunum er ekkert samkomuhús og
skemmtanir og aðrar sveitarsamkomur haldnar á þeim bæjum, sem
bezt eru hýstir — einhverju af hinum myndarlegu steinsteypuhús-
um, sem risið hafa upp á síðustu árum. Upphitun í kirkjum er víðast
mjög ábótavant. Eru þær margar ofnlausar — enda Iítið notaðar á
vetrum og ef til vill á sumrin lika.
Ólafsvíkur. Á þessu ári var settur ofn í kirkjuna í Ólafsvik.
Hóls. Ein kirkja er í héraðinu, er stendur á fallegum stað, á Hóli.
Það er timburkirkja, sæmileg bygging, með stórum ofni og raflýst,
enda er þorpið raflýst (mótor). Kirkjugarður er í kring um kirkjuna.
Er hann ekki vel girtur né hirtur — rakur og' sumstaðar grýttur.
Neðan undir hólnum, sem kirkjan og garðurinn standa á, er ihúðar-
hús eins áhúanda jarðarinnar. Getur þetta síður komið að sök nú
vegna þess að vatn hefir nýlega verið leitt heim á bæinn ofan úr fjalli.
Annað samkomuhús (Góðtemplara) er hitað og má kalla sæmilegt.
Blönduós. Samkomuhús bættist eitt við á árinu. Var það reist á
svo kallaðri Móhellu í Vatnsdal og er bæði allstórt og vel úr garði
gert. Undirbúningur undir hyggingu annars svipaðs húss er hafinn
við Auðkúlurétt í Svínadal. Kirkjum og kirkjugörðum er haldið
við stórlýtalaust.
Höfðahverfis. Á árinu var byrjað að steypa garð um kirkjugarðinn
hér á Grenivík, og á jafnframt að stækka hann.
Húsavikur. Samkomuhús er hér i þorpinu, sem hreppurinn á, og
er í því niðri leikfimissalur, raunar frekar lítill, en þó vel nothæfur,
og notaður af barnaskólanum og til leikfimiiðkana karla og kvenna.
Er það allt upphitað og vel hirt. í Aðaldal er samkomuhús, en ekki
fullfrágengið enn, þó upphitað. Á Tjörnesi er hið sama að segja, að
þar er ófullgert samkomuhús. í Reykjahreppi er sundlaug, sem notuð
er sem samkomuhús, og er hún svo þvegin úr hveravatni á eftir. í
Flatey er ekki annað samkomuhús en barnaskólinn, og er hann not-
aður þegar samkomur eru haldnar, sem ekki mun oft vera. Kirkjur eru
4 í héraðinu, og eru allar upphitaðar og prýðilega umgengnar. Kirkju-
garðar eru allir vel hirtir, og er þeim vel við haldið og sumum prýði-
lega. Gert mikið að blóma- og trjárækt í sumum þeirra.
Þistilfj. Samkomuhús eru engin, nema ef telja skal þinghúsræfil á
Svalbarði. Kirkjum er vel við haldið og hreinlega umgengnar. Kirkju-
garður á Sauðanesi er ógirtur og hinn ömurlegasti.
Hornafj. Samkomuhús eru sæmileg í öllum hreppum og ofnar í
flestum. Aftur á móti vantar ofn í flestar kirkjur (4), sem annars eru
sæmileg hús, 2 úr steini, 2 úr timbri og I úr torfi. Kirkjugarðaí' eru
alstaðar, nema á Stafafelli í Lóni, í mestu niðurníðslu.
Vestmannaeijja. Við samkomuhús vantar tilfinnanlega þarfahús og
þvottaskálar. Rætist vonandi úr þessu innan skamms. Kirkju og
kirkjugarði vel við haldið.
Rangár. Engin samkomuhús nema í samhandi við barnaskólana.
Kirkjur allar upphitaðar nema ein, sem er bamdaeign. Kirkjugarðar
víðast hvar sæmilega hirtir og varðir fyrir ágang'i búfjár.