Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Page 61
rönd manubr. sterni. Sjúklingurinn kvartar síðan yfir, að sér finnist
eins og eitthvað gutli til í sér. Hiti er þessa daga 39,4—40 st. IJpp-
gangur svipaður, andardráttur ínjög tíður og hósti ákafur á köflum.
Hiti hverfur, hósti minnkar aftur, og uppgangur verður minni. I apríl
fer hann svo á fætur, en er mjög mæðinn. Ég sendi hann síðan til
röntgenskoðunar í Landspítalann. Diagnosis: Ventilpneumothorax
spont. sin. (af tubercul. uppruna). Er nú sjúklingur á Vifilsstöðum.
Ég hefi sag't þessa sjúkrasögu hér vegna þess, að mér finnst hún þess
verð. Ber tvennt til: Fyrst og fremst hin frekar fátíða komplikation,
sem telja má, að komið hafi í byrjun marz og verður þess valdandi,
að sjúklingurinn verður abacillær. Hitt er heldur eigi ómerkilegt atriði
að renna huganum yfir forsögu sjúklingsins, meðan hfann er mjólkur-
póstur og líta á það út frá heilbrigðislegu sjónarmiði. Að lokum skal
þess getið, að sjúklingurinn gat þess, að hann hefði búið um tíma
með manni á Korpúlfsstöðum, sem varð að fara þaðan vegna las-
leika í lungumd)
Reykhóla. Moro-tuberculinpróf (heftiplásturspróf) var gert á öllum
skólabörnum í héraðinu (og að vísu á talsvert fleiri yngri börnum).
Vegna vegalengdar og samgönguerfiðleika gat héraðslæknir ekki
sjálfur lesið af árangurinn hjá öllum börnunum og varð að fela það
kennurum og í sumum tilfellum aðstandendum barnanna, en svörin
voru glögg og greinileg. Af skólabörnum reyndust 8 af 49 sýkt, eða
rúmlega 16%. Árangurinn var mjög í samræmi við það, sem búast
mátti við. Positiv voru þau börn, er höfðu kirtlabólgu (lymphadenit.
tub. colli), hin börnin voru ýmist frá heimilum, þar sem berkla-
sjúklingar höfðu verið cða höfðu verið samvistum við berklaveikt
fólk. Einkum þótti mikilsvert að fá vitneskju um 2 heimili í Gufu-
dalshreppi (Kollafirði), þar sem dvalið höfðu sjúklingar með smit-
andi berkla. A öðru heimilinu var árangurinn sá, að af 5 börn-
um (aldur 5—14 ára) var positvt svar hjá 4 (ekki því yngsta,
sem var nýfætt, er sjúkl. dvaldi á heimilinu). Á hinu heimilinu var
negativt svar hjá öllum börnunum (5 að tölu), nema því elzta, sem
hefir augljósa berkla (lymphadenit. tub. colli), og var komið á legg,
þegar sjúkl. dvaldi á heimilinu.
Flateyjar. Berklaveiki er lítil, miklu minni en ég hafði gert mér í
hugarlund efíir því sem var í Patreksfjarðarhéraði fvrir 3 áruin.
Bílcludals. Berldaveiki virðist vera í rénun. Við skoðun skólabarna
er ekki að sjá, að um neina útbreiðslu sé að ræða í Bíldudal. En á
einum bæ í Ketildalahreppi gæti verið um smitbera að ræða, og þyrfti
að athuga það nánar. Reyndar hefir ekki verið að tala um nein veik-
indi á bænum þetta ár, neina hjá einuin gömlum manni, sem dó þar
(í ár), en hefir aldrei verið skoðaður. Getur verið, að þar hafi verið
smitberi. En mörg börn á heimilinu hafa reynzt Pirquet 4-.
Þingeyrar. 70 ára karl var skráður fyrir mörgum árum. Hefir akírei
veikzt alvarlega, haft sæmilega heilsu og verið vinnufær. Á heimilinu
var uppeldisdóttir hans, 13 ára gömul. Var hún áður Pirquet : við
1) Landlæknir skrifaði berklayfirlækninum í ]>ví skyni, að athugáð yrði, hvernig
komið yrði á scm tryggustu heilhrigðiseftirliti með mjólkurbúum í grennd við
Iteykjavík.