Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Side 27
25
væg til loka júnímánaðar. Eftir það er enginn inflúenzusjúklingur
skráður til áramóta.
Berufi. Inflúenza gaus upp í einum hreppi héraðsins í kringum ára-
mót, en náði ekki mikilli útbreiðslu og datt fljótlega niður aftur, en
eftirköst hennar urðu því meiri (sjá kaflann um berklaveiki). Fyrri
part aprílmánaðar barst hún á ný I héraðið með skólapilti að sunnan,
og breiddist hún fyrst lit í Breiðdal, þar sem pilturinn átti heima, en
síðar um allt héraðið, nema þar sein hún hafði gengið eftir áramótin.
Veiki þessa mátti telja frekar væga, en hún var langvarandi. Ætlaði
fólkið aldrei að losna við hóstann, sem henni var samfara.
Hornafi. Kom með sjómönnum af Austfjörðum. Væg og breiddist
ekki út, enda skammt frá síðasta faraldri.
Síðu. Inflúenza barst hingað seint í júní, óvíst hvaðan. Fremur væg
nema í börnum, sem voru með kikhósta. Fengu 4 þeirra lungna-
bólgu, og dó eitt af þeim. Auk þeirra fengu lungnabólgu, sem afleið-
ingu iní'lúenzunnar, barn, 1% árs að aldri, er ekki hafði kikhósta,
eitt barn 8 ára og 2 fullorðnir. Faraldur þessi var að smábreiðast
út í júli og mun hafa horizt um allt héraðið, að fáum bæjum undan-
teknum. Á sumum bæjum veiktust allir, með nokkuð greinilegum
inflúenzueinkennum, en annarsstaðar var faraldurinn líkari venju-
legri kvefsótt.
Mijrdals. Barst til Víkur í apríl. Veiktust allmargir, en lágu skamma
hríð, og enginn varð þungt haldinn. Út um sveitina breiddist hún Htið.
Vestmannaeijja. Barst hingað i marz úr Beykjavík, en fór fljótt yfir
í aprílmánuði, og veiktist þá allur þorri þeirra, er veikina tóku. Var
um garð gengin í aprílmánaðarlok.
Rangár. Barst hingað í aprílmánuði frá Reykjavík, breiddist þá
töluvert út, frekar væg. Mest varð útbreiðslan seinni part maímán-
aðar, er fólk kom heim úr verinu, og varð þá mjög almenn, en ekki
sérlega slæm nema hjá börnum og öðrum þeim, er fengu kikhósta um
svipað leyti.
Egrarbakk/t. Inflúenza gekk um héraðið mánuðina marz, apríl og
maí, en varð aðeins vart við fáein tilfelli í júní og júlí. Fyrstu tilfell-
anna varð víst vart í miðjum marzmánuði i þorpinu á Selfossi, komin
beint frá Reykjavík. í apríl var hún komin út um allt héraðið, að því
cr virtist flutt í hverja sveit beint frá Reykjavík, því að þannig liggja
samgönguleiðirnar að mestu leyti. Hún reyndist væg yfirleitt, tók
unga ménn geyst með mikilli hitasótt, er datt niður eftir 2—3
daga með skjótum bata. Stöku menn urðu allþungt haldnir. Ég skoð-
aði 4 menn, er fengu lungnabólgu ii]>]) úr inflúenzunni.
Grímsnes. Barst hingað í marzmánuði frá Reykjavík. Fór um allt
héraðið á skömmuin tíma og var á slæðingi fram í jiilí. Nokkur til-
felli af lungnahólgu komu upp úr henni.
Keflavíkur. Inflúenzufaraldur sá, er gekk yfir allt héraðið, var ein-
hver sá versti, sem komið hefir síðan 1918. Sérstaklega voru fylgi-
kvillar slæmir, t. d. taugaverkir, liðabólgur, höfuðsvimi, eyrnabólgur,
og sumir fengu hita hvað eftir annað. Fólk var yfir höfuð lengi að
ná sér eftir veikina.
4