Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Page 31
29
Uornafj. Ekki gengið hér síðustu 10—15 árin. Einn aðkomumað-
ur veiktist hér 1934, en tókst að varna útbreiðslu.
Mýrdals. Barst á eitt heimili. Var það einangrað og úthreiðsla heft.
Rangár. Kom á 2 bæi undir Eyjafjöllum. Fyrst veiktist 17 ára
piltur á öðrum bænuxn í maílok. Hafði hann dvalið í Vestmanna-
eyjum um veturinn. Iig hafði enga hug'mynd um veikina á þessum
bæ, fyrr en hún var löngu um garð gengin. Barst hún þaðan á næsta l)æ.
Eijrarbakka. Af skarlatssótt komu aðeins fyrir 2 tilfelli á þessu
ári, svo að vitað sé, ba'ði á sama heimilinu á Eyrarbakka, á 3
ára stúlkubarni og móður hennar. Smitunarleið óviss. Hugsanlegt,
að hún hafi borizt frá Laugarvatnsskóla. Barnið veiktist siðast í jan-
úarmánuði, heldur vægt, móðir þess seint i febrúar og varð mikið
veik og lá lengi vegna eftirsjúkdóma (otitis, absc. paratonsill.). Ann-
að barn hennar, 3 mánaða gamalt, sem a 111 af var í sömu stofunum sem
sjiiklingarnir, veiktist aldrei, svo að vart yrði. Hiisbóndinn, skólastjóri
barnaskólans, var látinn hætta kennslunni og heimilið einangrað.
Grímsncs. Aðeins eitt tilfelli skrásett. Er það hið fæsta nú siðari
árin.
16. Kikhósti (tussis convulsiva).
Töflur II, III og IV, 16.
.S’jáklingafjöldi 1926—1935 :
1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1933
Sjúkl......... 91 6645 258 3 10 277 „ „ „ 8267
Dánir......... 2 155 3 „ „ 2 „ „ „ 123
Kikhósti gekk um allt land, og hefir ekki slíkur allsherjar-faraldur
gengið vfir síðan 1927. Hann var eins og inflúenzan merkilega sam-
ferða í öllum héruðum, hel'st í Reykjavik í apríl, berst fljótlega út
uin allt land og gengur að mestu leyti hjá ineð sumrinu. Veikin virðist
hafa verið í meðallagi þung, en hitli víða illa á, er hann tók börn
nýstaðin upp úr inflúenzu. Þó varð dánartalan lægri en í síðasta
landsfaraldri. Bólusetning var mjög víða reynd gegn kikhóstanum,
og ber flestum læknum saman um vafasaman eða jafnvel engan
árangur. Nokkuð einstæð er reynsla héraðslæknisins í Stykkishólmi
um það, live tiltölulega mörg bólusett börn hjá honum sleppa með
öllu við sýkingu, svo senx hann gerir grein fvrir hér á eftir.
Læknar láta þessa getið:
Skijxiskaga. Barst hingað iir Reykjavík síðari hluta aprílmánaðar.
Geisaði þá inflúenzan hér, en hún var sem fyrr er sagt tíðust á börn-
um frá 1 —10 ára. Það var því að vonum, að kikhóstinn myndi gera
hér einhvern usla, enda kom hann hart niður á fjölda harna, einkurn
nýfæddum, og voru mörg þeirra í hxettu stödd. Þó verður ekki sagt,
að þessi kikhóstaalda hafi verið svæsnari en oft áður. Gerð var til-
raun til að bólusetja börnin, en það var bæði, að bóluefnið fékkst
seint og af svo skornum skammti, að langt var frá, að það kæmi að
fullum notum. Við bólusettum báðir læknarnir til samans 104 börn,
og var útkoman sem hér segir: 18 fengu engan hósta, 21 væg’an, en