Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 114
112
hjálpar. Þegar einhver þarf á hjúkrun að halda, er venja hér að snúa
sér til ljósmóður, en hún er vitanlega ekki alltaf viðlátin.
Hornafj. Ekkert hjúkrunar- eða líknarfélag er starfandi í héraðinu,
en kvenfélag starfar á Höfn, sem stöku sinnum hefir stvrkt meðlimi
sína til að leita sér lækninga í Rvík.
Rangár. 2 sjúkrasamlög starfa í héraðinu, og vegnar háðum vel
og gera mikið gagn mörguin þeim, sem í þeim eru. Vilja félagsmenn
fyrir enga muni leggja þau niður, og er það dálítið hart, að þeim
skuli framvegis vera fyrirmunað að fá ríkisstvrk eins og áður hefir
verið.
Grímsnes. í Laugarvatnsskóla var hjúkrunarkona yfir skólatímann,
og er það til mikilla bóta, því að margt kemur fyrir á svo mannmörgu
heimili, sem hefir hátt á annað hundrað manns.
Keflavíkur. í Sandgerði var eins og undanfarið lærð hjúkrunar-
kona á vegum Rauðakrossins, og' fer hér á eftir skýrsla hennar eftir
mánuðum: í febrúar höfðu: 8 hálsbólgu, 4 kvefsótt, 1 stingsótt(?), 1
iðrakvef og 17 ígerðir. í marz 10 hálsbólgu, 1 heimakomu, 1 inflúenzu,
12 ígerðir. í apríl: 4 hálsbólgu, 138 inflúenzu, 14 igerðir. í maí: 3
hálsbólgu, 4 inflúenzu, 6 ígerðir. Alls: Hálsbólga 25, inflúenza 143,
ígerðir 49, heimakoma 1, kvefsótt 4, stingsótt(?) 1, iðrakvef 1. Sést á
þessari skýrslu, að hjúkrunarkonan hefir töluvert að gera á vertíðinni
og að það er ekki vanþörf á að hafa hana, ekki sízt þegar skilyrði
þau, sem hún hefir til að vinna við, eru hin verstu og erfiðustu. Sjó-
búðir þær, er menn liggja í, eru bæði óhreinlegar, loftillar og erfiðar
að þrífa, þar eð aur- og slorburður er mikill inn í íbúðirnar. Þar að
auki stöðugur órói dag og nótt, og eru því í raun og veru óhæfar til
að stunda sjúklinga í eða láta þá liggja í.
C. Rannsóknarstofa Háskólans.
Prófessor Níels Dungal hefir gefið eftirfarandi skýrslu um störf
hennar á árinu 1935:
Berklaveiki (litun eða ræktun
á bac. Tbc.): Jákvæð
Litun Ræktun Neikvæð Samtals
Hrákar . 133 32 743 908
Þvag • >> 9 122 131
Mænuvökvi • >> 1 4 5
Pleura, hein, liðir o. fl augaveiki: . 26 8 38 72
Widalspróf 5 (2 Para B) 49 54
Ræktun úr blóði • >> 24 24
— saur 55 55
— — þvagi 5 41 46
e k a n d i y phi li s : 91 507 598
Sig'mapróf í blóði 5 >> 5
Kahnspróf i blóði 71 314 385
Wassermannspróf í blóði 38 65 103
— í mænuvökva 3 53 56