Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1935, Blaðsíða 118
116
áföll hefðu hent þá, skexnmdusjt svo mikið, að ekki þótti gerandi við
þá, svo að það varð að reisa ný hús í staðinn. Öll eru hin nýju hús
úr járnbentri steinsteypu eða timbri og' flest með járnþaki, sum
með pappaþaki, flest með miðstöðvarhitun. Ekki er vafi á því, að
framförin er mikil frá gömlu bæjunum að sumu ieyti. Einkum var
lekinn mjög bagalegur í sumum þeirra og rakinn, svo að matvæli og
munir lágu undir skemmdum. Hitt er þó víst, að nýju húsin eru ekki
heldur gallalaus og gerð þeirra enganveginn hagað svo sem þyrfti i
samræmi við loftslag og aðra staðhætti og við fjárhagsástæður þeirra,
sem ætlað er að búa i þeim. Sjálfur hyggingarkostnaðurinn er sök sér,
enda flest húsin reist með meiri eða minni styrk frá landskjálftasam-
tökunum. Hitt er verra, að kostnaður við upphitun húsanna hlýtur
að verða mjög tilfinnanlegur efnalitlu fólki — en það eru flestir,
sem hér er um að ræða — og hætt við, að hún verði þess vegna sum-
staðar af skornari skammti en ho!t er.
Höfðahverfis. Á árinu hafa verið reizt 2 steinhús og eitt lítið
timburhús. Ein rafstöð hefir verið reist.
Reykdæla. Þrifnaður góður. Lítið um !ús.
Húsavíkur. Yfirleitt má segja, að húsakynni séu hér sæmileg. Öll
ný hús eru hituð frá miðstöð og miðstöðvar settar í gömul hús.
Þrifnaður má yfirleitt heita sæmilegur og víða ágætur. Þó vantar
æði víða karnra á bæjum, og er slíkt ekki viðunandi.
Öxarfj. 8 ný íbúðarhús voru byggð, öll í sveit, með miðstöð,
flest vatnsveitu og fleiri nútíma þægindum. Þá og mikið af fjárhúsum.
hlöðum, safnþróm o. s. frv. Hér er mikil steinsteypuöld, svo að við
liggur, að tízka ráði stundum meiru en brýn þörf. Sá hugsunarháttur
ríkir, að komast yfir sem mesta eign — að nafni, því að margt er
gert i skuld. Menn trúa á hrun pappírs — og ráðvendnin á vand-
ræðadaga.
Þistilfj. Byggð voru 3 steinhús á Strönd i stað gamalla og lítt
notandi bæja. Virðast þessi nýju hús vera eftir atvikum nokkuð hæfi-
lega stór fyrir þá, sem nota eig'a. Auk þess var byggt töluvert af hev-
hlöðum fyrir þurrhey og vothey, svo og áburðargeymslur, safnþrær.
Er það bæði til þrifnaðar og hagsbóta. Illa gengur að koma fólki í
skilning um gildi vanhúsa, og hefir meira að segja ekki tekizt að fá
fræðslunefndir til þess að skilja, að það er ekki boðlegur skólastaður
þar, sem það hús vantar.
Vopnafj. 2 ný steinhús voru byggð í sveitinni á þessu ári, fyrir
lán úr Byggingar- og landnámssjóði. Húsin eru með einföldum
steypuveggjum, en einangrað í veggina með streng, sem lagður er í
steypuna, eins og tíðkast um hús af þessu tagi.
Hróarstungu. Litlar endurbætur hafa orðið á húsakynnum á árinu.
2 steinsteypuhús með miðstöðvarhita hafa verið reist — en reyn-
ast nokkuð köld. Stafar það ef til vill einna mest af eldiviðarvand-
ræðum. Kol svo dýr, að þau eru vart kaupandi — kosta um kr. 50,00
tonnið, ltomið upp fyrir fjall, og þá er víðast eftir að flytja það langar
leiðir eftir vegleysum. Annars er aðaleldiviðurinn tað, svörður og sum-
staðar svolítil skógartekja. Húsakynni eru hér annars yfirleitt gömlu
torfbæirnir, sumir allsæmilegir, en margir mjög hrörlegir og nærri