Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Qupperneq 9
VAlgERðUR STEFáNSDóTTIR
8
skapar það. Michail Bakhtin benti á hvernig líf orða (tákna) væri alltaf hlaðið
hinu félagslega. Öll orð bæru keim af starfi, grein, hneigð, hóp, sérstakri
vinnu, ákveðinni manneskju, kynslóð, aldurshópi, deginum og klukkustund-
inni. Sérhvert orð bæri með sér samhengi og aðstæður sem það hefði lifað
í alla sína félagslegu tilveru.19 Samskipti skapa menningu með því að ferli
þeirra verða venjubundin og stöðug, flytjast á milli kynslóða og verða að
habitusi (stundum þýtt sem veruháttur á íslensku).20
Samfélag döff fólks er nauðsynleg forsenda samskipta og að táknmál
þróist. Með því verða til formgerðir eins og tengsl, venjur og reglur. Döff
menning eða habitus þróast. Fræðimenn hafa hingað til ekki fengist við upp-
runa og þróun ÍTM og döff menningar í þessu ljósi. Hins vegar hafa þeir
velt fyrir sér hvernig táknmál þróast við mismunandi félagslegar aðstæður.
Susan goldin-Meadow rannsakaði máltileinkun heyrnarlausra barna,
sem tileinkuðu sér látbragð og bendingar foreldra sinna, aðgreindu lát-
bragðið í einingar, með skýrt merkingarsvið og röðuðu þeim í „setningar“
með ákveðinni „orðaröð“. látbragð foreldranna, sem þeir notuðu tilviljana-
kennt og óskipulega, varð að táknum og málkerfi hjá barninu. Oftast er talað
um þetta sem heimatáknun eða heimatáknmál (e. homesign systems). Að mati
goldin-Meadow er með heimatáknun komið fyrsta stig í þróun táknmáls.21
Einungis sé um að ræða dýpt einnar kynslóðar en málbreytingar í tákn-
málum komi oftast inn með nýjum kynslóðum málhafa.22
Ben Bahan bendir á að alls staðar í heiminum fari sama ferlið af stað
þegar heyrnarlausir koma saman. látbragð verði að tákni og bindist í mál-
kerfi með öðrum táknum. Ekki taki nema nokkrar kynslóðir þar til það sé
orðið að venjubundnu táknmáli.23 Í iðnvæddum löndum var það fyrst og
fremst þegar heyrnarlausum börnum var safnað saman í heimavistarskóla að
19 Mikhail Bakhtin, The Dialogic Imagination. Four Essays, þýðendur Caryl Emerson og
Michael Holquist, Austin: University of Texas Press, 1981, bls. 293.
20 Pierre Bourdieu, Language and symbolic power, ritstjóri John Thompson, þýðendur
gino Raymond og Matthew Adamson, Massachusetts: Harvard University Press
Cambridge, 1991.
21 Sjá einnig lisa Rissman og fleiri, „The communicative importance of agent-
backgrounding. Evidence from homesign and Nicaraguan Sign language“, Cogni-
tion 203/2020, bls. 1–20.
22 Susan goldin-Meadow, „Watching language grow“, Proceedings of the National Aca-
demy of Sciences, 102: 7/2005, bls. 2271–2272, hér bls. 2272.
23 Ben Bahan, „Senses and Culture. Exploring Sensory Orientations“, Deaf Gain.
Raising the Stakes for Human Diversity, ritstjórar H-Dirksen l. Bauman og Joseph
J. Murray, Minneapolis og london: University of Minnesota Press, 2014, bls. 233–
254, hér bls. 234.