Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Page 78
Rannveig Sverrisdóttir
og Kristín Lena Þorvaldsdóttir
Um málstefnu íslensks táknmáls
Inngangur1
Íslenskt táknmál (ÍTM) öðlaðist formlega viðurkenningu árið 2011 þegar
Alþingi samþykkti Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.2 Rétt-
indi táknmálsfólks3 voru þar með fest í lög. Í lögunum segir meðal annars að
íslenskt táknmál sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar
og samskipta og barna þeirra og að stjórnvöld skuli hlúa að því og styðja.4
Einnig er kveðið á um skipan Málnefndar um íslenskt táknmál og að leitað
skuli samvinnu við hana um málstefnu og stöðu íslensks táknmáls.5
Árið 2020 skipaði þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra
starfshóp til að vinna að stefnu fyrir ÍTM. Á vormánuðum 2021 skilaði
starfshópurinn af sér skjali sem nefndist „Málstefna íslensks táknmáls“.
Í skjalinu eru settar fram fimm meginstoðir eða áherslur er varða ÍTM
ásamt skýrslu, greinargerð og aðgerðaáætlun.6 Þegar þetta er skrifað
hefur „Málstefna íslensks táknmáls“, MÍTM, undir formerkjum tillögu til
1 Höfundar vilja þakka ónafngreindum ritrýnum sem og Valgerði Stefánsdóttur og
Guðrúnu Steinþórsdóttur ritstjórum fyrir gagnlegar ábendingar.
2 „Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61“, Alþingi, 7. júní 2011,
sótt 9. nóvember 2022 af https://www.althingi.is/altext/stjt/2011.061.html.
3 Hugtakið táknmálsfólk er hér notað sem yfirheiti yfir þá sem líta á ÍTM sem sitt
móðurmál/fyrsta mál eða þá sem eru tví- eða fjöltyngdir og líta á ÍTM sem eitt af
sínum málum og aðstandendur þeirra. Hugtakið vísar bæði til fullorðinna og barna.
4 Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011, 3. gr.
5 Sama heimild, 5. gr.
6 Hér eftir verður vísað til þessa skjals í heild sinni með skammstöfuninni MÍTM og
í heiti þessarar greinar er vísað til þessa skjals.
Ritið
3. tbl. 22. árg. 2022 (77-110)
Ritrýnd grein
© 2022 Ritið, tímarit Hug vísinda stofnunar
og höfundar greinarinnar
Útgefandi:
Hugvísinda stofnun Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
Birtist á vefnum http://www.ritid.hi.is.
Tengiliður: ritið@hi.is
DOI: 10.33112/ritid.22.3.2
Birt samkvæmt skilmálum
Creative Commons BY (4.0).