Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Page 103

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Page 103
RAnnVEIG SVERRISDóTTIR OG KRISTÍn LEnA ÞORVALDSDóTTIR 102 viðhorf til málsins og spornað gegn því að litið verði á málið sem hjálpar- tæki. Á öllum skólastigum þarf að uppfæra námskrár og tryggja að þar sé ÍTM sérstök faggrein. Einnig að á leik- og grunnskólastigi séu starfandi skólar sem veita táknmálsbörnum málumhverfi og menntun þar sem ÍTM er í forgrunni og veita öðrum skólum þar sem táknmálsbörn stunda nám ráðgjöf.138 Með aukinni ráðgjöf og fræðsluefni þeirra stofnana sem vinna með ÍTM er hægt að auka líkur á því að lögum sé fylgt og ÍTM fái for- gang í málumhverfi barnanna. Síðast en ekki síst eru tilgreindar aðgerðir sem stuðla að því að táknmálsnám sé og verði áfram aðgengilegt öllum í íslensku samfélagi139 því aðeins þannig má fjölga þeim sem tala ÍTM og stækka þar með málsamfélagið sem börnin hafa aðgang að. Samkvæmt Quadros140 þurfa málstefnur táknmála að taka tvítyngi til greina enda er það raunveruleiki flestra ef ekki allra táknmálsbarna að alast upp í tvítyngi raddmáls og táknmáls, hvort sem börnin eru heyrnarlaus, heyrnarskert eða coda börn. Engu að síður þarf að líta á táknmál sem fyrsta mál döff barna og coda barna. Þetta skiptir máli í kennslu. Í Aðalnám- skrá grunnskóla frá 1999 er kafli um táknmál en í Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 er kafli um ÍTM og íslensku.141 Í námskránni frá 2013 er náms- greinin ÍTM og íslenska skipulögð sem heildstæð námsgrein með greini- legri áherslu á tvítyngi en hins vegar er litið svo á að ÍTM sé hið daglega samskipta- og kennslumál. Þrátt fyrir það sem segir í námskránni virðast málin tvö ekki standa jafnt neins staðar í skólakerfinu, ekki einu sinni í Hlíðaskóla, eina grunnskóla landsins sem starfrækir táknmálssvið.142 Spyrja má hvort málstefna ÍTM hefði þurft að taka sterkar til orða um ÍTM sem annað tveggja mála í tvítyngi táknmálsbarna, með ríka áherslu á notkun ÍTM en einnig með þá staðreynd í huga að flest íslensk táknmálsbörn eru 138 B3, B4, B8. 139 B14. 140 Ronice Müller de Quadros, „Language Policies and Sign Languages“, bls. 14. 141 „ Aðalnámskrá grunnskóla“, 1999; „Aðalnámskrá grunnskóla, Almennur hluti 2011, Greinasvið 2013“, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2013, sótt 16. nóvember af https://www.stjornarradid.is/media/menntamalaraduneyti-media/media/fretta- tengt2016/adalsnamskra-grunnskola-3.-utg.-2016.pdf. 142 Valgerður Stefánsdóttir, Ari Páll Kristinsson og Júlía G. Hreinsdóttir, „The Legal Recognition of Icelandic Sign Language. Meeting Deaf People’s Expectations?“, bls. 240–241; Elena Koulidobrova og Rannveig Sverrisdóttir, „How to Ensure Bil- ingualism/Biliteracy in an Indigenous Context. The Case of Icelandic Sign Lang- uage“, Languages 6(98)/2021, https://doi.org/10.3390/languages6020098. Sjá einn- ig skýrslur Málnefndar um íslenskt táknmál frá 2014 og 2015, sóttar 18. nóvember 2022 af https://islenskan.is/islenskt-taknmal/skyrslur-og-alyktanir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.