Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Page 145
ALDA BJöRK VALDImARSDóTTIR
144
saman stjórnarskrána, en eins og Durkheim bendir á færast háttsettir ein-
staklingar innan samfélagsins stundum inn á svið hins goðsögulega og verða
sjálfir að tótemi.51
Hochschild gerir það að greiningarefni hvernig tótem geti einnig verið
fáni eða kross og hvernig það sameini þá sem dýrka. Í þessu samhengi má
benda á að Trump og stuðningsmenn hans klæddu sig í fánalitunum þegar
þeir settu upp rauða mAGA-hatta og bindi og fóru í blá jakkaföt.52 Trump
tókst að sameina evangelískan hóp ákafra hvítra einstaklinga og hann lyfti
þeim upp úr biturleika, örvæntingu, þunglyndi og þeirri tilfinningu að vera
útskúfaðir. Hann kallaði kosningabaráttu sína „hreyfinguna“ og hún virkaði
eins og risastór þunglyndismeðferð. margir leiðtogar lofi því að fólki verði
bjargað og Trump vakti upp „siðferðilega meðvitund“ (e. moral conscious-
ness) hópsins og fyllti þá sem trúðu á hann lotningarfullri alsælu (e. ecstatic
high). Hópurinn tengdist bræðra- og systraböndum og hluti af því ferli var
að kasta út öllum einstaklingum sem tilheyrðu þeim ekki. Í hópi úrkastsins
voru múslimar sem Trump vildi banna að koma inn í landið, innflytjendur
af mexíkóskum uppruna og jafnvel svart fólk.53 Fundnir eru á þennan hátt
blórabögglar (e. scapegoat) og þannig myndast gleðirík samheldni innan sam-
komunnar. með því að fleygja út hinum vondu sameinast aðdáendurnir í
þeirri tilfinningu að þeir séu „hinir góðu“ og að þeir séu ekki lengur fram-
andi íbúar í sínu eigin landi. Í því hvernig Trump kallaði sífellt „Losum
okkur við PC“ (e. „Lets get rid of PC“) má sjá hvernig hann endurmótaði við-
horfin til svartra, kvenna, innflytjenda og hinseginfólks. Það hafi verið léttir
fyrir marga hægri sinnaða einstaklinga að vera ekki lengur undir vökulum
augum „PC lögreglunnar“ en þeim hafi fundist frjálslyndir koma fram við
sig eins og þeir væru glæpamenn.54
Um illkynja norm og leiðtoga sem hungrar í spegla
mikilvægt er að hafa í huga að þrátt fyrir að Trump beiti samlíðan til þess
að skapa klofning og andúð í þeim tilgangi að þétta saman stuðningsmanna-
hóp sinn þá telst hann ekki einstaklingur sem býr yfir mikilli tilfinningalegri
samlíðan og hann hefur ekki raunverulega samúð með þeim sem þjást, eins
og sérfræðingar hafa ítrekað bent á.
51 Sama heimild, bls. 103–104.
52 mAGA er pólitískt slagorð sem var á frægan hátt notað af Donald Trump þegar
hann bauð sig fram til forseta árið 2016. Það merkir „make America Great Again“.
53 Arlie Russell Hochschild, Strangers in Their Own Land, bls. 226–227.
54 Sama heimild, bls. 227.