Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Qupperneq 151
ALDA BJöRK VALDImARSDóTTIR
150
að hinir ábyrgu svari fyrir orð sín og gjörðir, sé refsað og taki afleiðingunum
af því að hafa brotið siðferðisreglur og líklega stýrðist hópurinn af eftir-
töldum þremur liðum í siðferðisgreiningu Haidts: Væntumþykju/skaðsemi,
þar sem fundið er til með þeim sem minna mega sín og þeir studdir opinber-
lega; yfirráðum/undirgefni, þar sem gerð var sú krafa að þingmenn hegðuðu
sér í samræmi við þjóðfélagsstöðu sína; og helgidómi/aftignun, þar sem við-
tökurnar einkenndust af ákveðnum viðbjóðstilfinningum sem eiga sér rætur
í því að fólki finnist öryggi sínu ógnað líkt og gerist þegar við komumst í
snertingu við sníkjudýr eða síkla.
Freyja Haraldsóttir aðjunkt við Háskóla Íslands, kynjafræðingur og
þroskaþjálfi var eitt helsta viðfangsefnið í fréttunum eftir Klaustursmálið en
þingmennirnir töluðu meðal annars óvirðulega um hana og hennar fötlun.
Á upptökunum heyrðust greinilega selshljóð frá einum af þingmönnunum
sem sátu að sumbli eftir að nafn Freyju hafði borið á góma og vildi hann með
hljóðunum augljóslega líkja henni við sel.69 Stuttu áður en hljóðin heyrast
hafði hún verið uppnefnd „Freyja eyja“. Skiljanlega vakti upptakan hörð
viðbrögð og þingmennirnir voru ásakaðir um kvenfyrirlitingu, smánun og
niðurlægingu. mótmæli voru meðal annars haldin í kjölfarið á Austurvelli 1.
desember. Í ræðu sinni þar lagði Inga Björk margrétar Bjarnadóttir áherslu á
að fatlaðir væru sérstaklega viðkvæmur hópur og í upptökunum kæmu fram
kerfislægt hatur gegn þeim.70
Freyja hefur um árabil beint athygli að fordómum gegn fötluðum og
er aðgerðasinni.71 Hún lýsti fötlunar- og kvenfyrirlitningunni sem ein-
kenndi afsökunarbeiðnina frá Sigmundi Davíð formanni miðflokksins en
hann hringdi í Freyju eftir að upptökurnar höfðu lekið út og hélt því fram
69 myndlíkingin var tekin upp af fjölmiðlum og birtar samsettar myndir af Freyju
og sel á býsna ósmekklegan hátt. Sjá til dæmis: „Það sem þú vissir ekki um önnu
Kolbrúnu: Þroskaþjálfi og jafnréttissinni sem var fyrst til að uppnefna Freyju – „ekki
bara saklaus kona““, DV, 3. desember 2018, sótt 15. ágúst 2022 af https://www.dv.is/
frettir/2018/12/03/thad-sem-thu-vissir-ekki-um-onnu-kolbrunu-throskathjalfi-og-
jafnrettissinni-sem-var-fyrst-til-ad-uppnefna-freyju-ekki-bara-saklaus-kona/.
70 Kristín ólafsdóttir, „enginn af þessum dónum hefur séð sóma sinn í að biðja Freyju
Haraldsdóttur afsökunar“, Vísir, 1. desember 2018, sótt 26. júlí 2022 af https://www.
visir.is/g/2018181209906/-enginn-af-thessum-donum-hefur-sed-soma-sinn-i-ad-
bidja-freyju-haraldsdottur-afsokunar-.
71 Freyja hefur verið öflug í baráttunni gegn fötlunarfordómum á Íslandi og skrifaði
meðal annars pistil í Stundina rúmu ári áður en Klaustursupptökunni var komið á
fjölmiðla. Sjá Freyja Haraldsdóttir, „Fötlunarfordómar skapa ofbeldismenningu“,
Stundin, 15. apríl 2017, sótt 28. júlí 2022 af https://stundin.is/pistill/fotlunarfor-
domar-skapa-ofbeldismenningu/.