Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Blaðsíða 153
ALDA BJöRK VALDImARSDóTTIR
152
fylgja burtséð frá því hver á í hlut? Slíku er alltaf erfitt að svara og mikil-
vægt að hafa í huga að þeir sem tóku til máls eða brugðust við fréttunum af
Klaustursmálinu stýrðust að sjálfsögðu af alls konar ólíkum forsendum sem
þýðir að varlega verður að fara í það að draga of almennar ályktanir. Hér er
þó vert að skoða svipað mál frá sama tíma sem snýst líkt og Klaustursmálið
um smánun, fordóma og hlutgervingu annarrar fatlaðrar konu.
Sunna elvira Þorkelsdóttir slasaðist alvarlega í malaga á Spáni í janúar
2018 þegar hún féll fram af svölum og er eftir slysið lömuð fyrir lífstíð með
mænuskaða. Fyrrverandi eiginmaður Sunnu, Sigurður Kristinsson, fékk
dóm vegna íkveikju árið 2004 en uppreist æru 2013. Hann var dæmdur fyrir
stórfelld skattsvik árið 2018 og árið 2019 var hann dæmdur í þiggja og hálfs
árs fangelsi hjá Landsrétti fyrir að hafa smyglað amfetamíni til landsins frá
Spáni árið 2017. ekki er ólíklegt að þessar bakgrunnsupplýsingar hafi haft
áhrif á það hvernig almennir lesendur upplifðu slysið en auk þess má ætla að
aðrir utanaðkomandi þættir hafi enn frekar aukið á samlíðunarrofið á milli
hennar og þeirra sem tjáðu sig um málið með einum eða öðrum hætti, svo
sem atvinna Sunnu elviru sem innheimtulögfræðingur hjá Inkasso löginn-
heimtu, efnahagur og grunur um ýmiss konar fjársvik.74
mál Sunnu elviru og slysið á Spáni fékk talsverða umfjöllun í fjölmiðlum
á vormánuðum 2018 en erfitt reyndist fyrir hana að fá ferðafrelsi vegna
rannsóknar á fíkniefnamálinu, og liðu tæpir þrír mánuðir áður en hún fékk
að snúa aftur til Íslands. Sunna hefur sjálf rætt að hún hafi fundið fyrir því að
fólk þekki hana úti á götu. Í viðtali við Morgunblaðið segir hún:
Ég áttaði mig ekki alveg á því fyrr en ég var komin hingað heim
þótt það hafi verið áreiti frá fjölmiðlum meðan ég var úti. Um leið
74 Í fjölmiðlum kom fram að hús Sunnu elviru og Sigurðar á Spáni hefði árið 2018
verið metið á 172 milljónir en það er með sundlaug og fallegum garði samkvæmt
frétt DV um málið. Í sömu frétt er sagt að „margt við frásögn Sunnu elviru stenst
ekki nána skoðun“. Hjónin hafi flúið land og „skilið eftir sig slóð svika“. móðir
Sunnu hóf söfnun fyrir sjúkraflugi til þess að koma Sunnu aftur til Íslands en gögn
í málinu benda til þess að kostnaðurinn við flugið hafi verið 4.1 milljónir króna en
ekki 5.5 milljónir eins og fjölskyldan hélt fram. einnig er verktakafyrirtæki fyrr-
verandi eiginmanns Sunnu sem varð gjaldþrota, skoðað nánar í sömu frétt og sagt
að grunur leiki á um stórfelld undanskot eigna og þjófnað úr félaginu áður en til
gjaldþrotsins kom. Þá sé félagið til rannsóknar hjá skattayfirvöldum. móðir Sunnu
er sögð hafa verið starfsmaður fyrirtækisins og séð um bókhaldið. Jafnframt er farið
í saumana á kaupum og sölu eignar í Kópavogi sem tengist fyrirtækinu. Sjá „Sjáðu
myndirnar – Sunna neitar að tjá sig um húsið“, DV, 19. febrúar, 2018, sótt 20. ágúst
2022 af https://www.dv.is/frettir/2018/02/19/holl-sunnu-og-sigurdar-til-solu-a-
172-milljonir-sjadu-myndirnar-sunna-neitar-ad-tja-sig-um-husid/.