Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Side 160

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Side 160
„ÉG HeYRI ÞAð Sem ÞÚ SeGIR“ 159 önnur viðurkenning frá Svarthöfða sama ár er „Stóllinn Snorri“ en hann á „hljóð ársins“. Þar hæðist Svarthöfði að skýringu Sigmundar Davíðs í sím- talinu til Freyju á því að selahljóðið hafi verið ískur í stól sem dreginn var eftir gólfinu með því að vísa í barnasöguna landsþekktu um selinn Snorra: „Fólk hefur haft á orði að þegar stóllinn Snorri sé dreginn eftir gólfinu heyr- ist skerandi selahljóð, sem sumir vilja meina að líkist einnig hjóli sem brems- að er fyrir utan glugga. ef verulega illa liggur á honum, þá á stóllinn Snorri til að uppnefna fólk og tekur þá alla minnihlutahópa fyrir.“87 Í þessari sömu umfjöllun Svarthöfða er Sigmundur Davíð jafnframt valinn „herramaður ársins“ í háðungarskyni vegna þess að hann hringdi í Freyju og bað hana afsökunar vegna Klaustursmálsins. Freyja hafi hins vegar ekki tekið „herra- mannslega afsökunarbeiðni Sigmunds“ gilda.88 Orðavalið herramannslegur vísar mögulega í þau orð Freyju að „sumum körlum“ sé líklega í nöp við femínískar skoðanir hennar en kynjaklofningurinn sem aðgreiningin birtir væri þá dæmi um þá samlíðunargjá sem Hochschild gerir að umræðuefni. Í fljótu bragði virðist hún sjálfgefin en verður flóknari þegar haft er í huga að það var Anna Kolbrún Árnadóttir, formaður Jafnréttissjóðs, sem uppnefndi Freyju. Forvitnilegast er þó hugsanlega hvernig blaðamaður DV staðsetur sig annars vegar gagnvart Sunnu elviru og svo hins vegar gagnvart Freyju. Freyja tilheyrir minnihlutahópnum sem þingmennirnir smánuðu og fær samúð eða samlíðan blaðamannsins. Sunna elvira tilheyrir aftur á móti ann- ars konar heimi og gefið er til kynna að fyrrverandi maður hennar hafi átt þátt í slysinu sem hún varð fyrir en Sunna hefur sjálf sagt í viðtölum að hún muni ekki aðdraganda slyssins.89 Þetta er ekki spurning um að Sunnu elviru sé ekki sýnd nein samúð heldur að hún er hér fórnarlamb grófrar meinfýsni, háðs og smánunar, að því er virðist fyrst og fremst vegna tengsla sinna við fyrrverandi eiginmann sinn. Hugsanlega er þó skýringanna eins og áður sagði einnig að leita í atvinnu Sunnu, fjárhagsstöðu og siðferðis- spurningunum sem spruttu í tengslum við fjársöfnunina vegna komu hennar með sjúkraflugi heim til Íslands. margir myndu líklega hallast að því að vandamálið í dæminu um Sunnu elviru sé einmitt skortur á samlíðan. Og að einhverju leyti er það rétt. en hér má þó einnig sjá flókna samlíðan í verki sem býr í samstillingunni eða einingunni innan hópsins sem líklega blöskrar framkoma fyrrverandi eigin- 87 „Svarthöfði verðlaunar þá sem stóðu sig best á árinu. Stóllinn Snorri“. 88 „Svarthöfði verðlaunar þá sem stóðu sig best á árinu. Herramaður ársins“. 89 marta maría Winkel, „Sagan hennar Sunnu elviru“, Smartland Mörtu Maríu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.