Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Qupperneq 165
ALDA BJöRK VALDImARSDóTTIR
164
Líklega hafa fáir orðað þetta skýrar en bandaríska skáldið emily Dickin-
son sem orti: „Sálin velur sinn Vinskap – / dregur sig þvínæst í Hlé – / til
heilags meirihluta – / nægileg –“.104
Lokaorð
Af ofangreindri umfjöllum má vera ljóst að ýmsar hættur felast í þeirri til-
hneigingu mannskepnunnar að binda sig við stærri einingar, að hugsa, finna
til og mynda sér skoðanir með tilliti til þess hóps sem hún telur sig tilheyra.
Við hugsum um okkur andspænis þeim.
Paul Bloom sem hefur rannsakað siðferðiskennd með því að skoða unga-
börn segir að okkur sé eðlislægt að láta okkur standa á sama um og vera
jafnvel illa við ókunnuga. Við höfum ríkar tilhneigingar til þröngsýni og
fordóma. Hafa beri í huga að siðferði sé lífræðileg þróun sem hefur að ein-
hverju leyti mótast vegna þarfar og langana til þess að refsa þeim sem við
lítum á sem vonda.105 mikilvægt er því að skoða hlutverk samlíðunar með
hliðsjón af siðferði. eitt hlutverk hennar er að hvetja okkur til þess að þykja
vænt um aðra, hún getur því leitt til samúðar og óeigingirni. en tengingin á
milli samlíðunar og samúðar er þó flókin. Þrátt fyrir að samlíðan geti verið
ósjálfráð og ómeðvituð þá veljum við oft hvort við finnum til samlíðunar
með öðrum. Samlíðan getur því verið afraksturinn af siðferðilegu vali okkar,
en hún býr ekki til siðferðilegt val. Það sem hefur áhrif á samlíðanina er hvað
okkur finnst um manneskjuna.106
Bloom leggur áherslu á að við finnum fyrst og fremst fyrir samlíðan
og samúð með nánum vinum okkar og fjölskyldu og að rannsóknir sýni að
náttúruleg viðbrögð okkar gagnvart ókunnugum einkennist ekki af samúð
104 emily Dickinson, Berhöfða líf. Ljóðaúrval, magnús Sigurðsson þýddi, Reykjavík:
Dimma, 2020, bls. 117. Línurnar eru þannig á frummálinu: „The soul selects its
own society – / Then shuts the door – / To her divine majority — / Present no more
—“.
105 Paul Bloom, Just Babies. The Origins of Good and Evil, bls. 5–11. Spurningar um
eðli siðferðis eru vitaskuld hugleiknar í siðfræði og meðal annars er spurt hvernig
siðferðileg dómgreind og siðferðisreglur séu skilgreindar. eru tilfinningar og skyn-
semi til dæmis leiðarvísir okkar þegar kemur að siðferðilegum álitamálum? Fræg
eru orð Hume sem sagði að skynsemin væri þræll ástríðna okkar. Jennifer Nado
og fleiri ræða ýmsar skilgreiningar á siðferðilegri dómgreind í grein sinni „moral
Judgment“, The Routledge Companion to Philosophy of Psychology, ritstjórar John Sy-
mons og Paco Calvo, London/New York: Routledge, 2009, bls. 621–633, hér bls.
621.
106 Paul Bloom, Just Babies. The Origins of Good and Evil, bls. 43–44.