Úrval - 01.06.1948, Page 64
62
T-TRVAL
Næstum á elleftu stundu bætt-
ist einn lítt þekktur flugmaður
1 hópinn í New York.
En ákvörðun Charles A. Lind-
berghs var ekki tekin á elleftu
stundu. Hann var 25 ára gamall,
reyndur póstflugmaður og höf-
uðsmaður í varaflugliði hers-
ins, og árið áður hafði hann
hafið allan tæknilegan og fjár-
hagslegan undirbúning að þvi
að fljúga yfir Atlantshafið. En
hann hafði ekki safnað nema
2000 dollurum í árslok, þegar
fjármálamenn í St. Louis borg
buðust til að leggja af mörkum
15000 dollara. (Allur kostn-
aður við flugið reyndist 13500
dollarar).
Byrjað var á byggingu flug-
vélarinnar 28. febrúar. Það
var Ryanvél með sérútbúnum
benzíngeymum og Wright
Whirlwind hreyfli. Með því að
margir fleiri flugmenn voru að
búa sig til flugsins, krafðist
Lindbergh, að smíðinni yrði lok-
ið innan 60 daga. Fyrir harð-
fengi og dugnað allra, sem hlut
áttu að máli, var vélin tilbúin
til flugsins á Curtissflugvellín-
um á Long Island 12. maí 1927.
Það var í vikunni sem frönsku
flugmennirnir Nungesser og
Coli hurfu í hafið, vikunni sem
Byrd og þriggja manna áhöfn
hans, og Chamberlin og Levine
biðu allir byrs í New York.
Dauðaslys og önnur óhöpp höfðu
skákað öllum hinum keppi-
nautunum úr leik.
Veðrið var slæmt alla vikuna.
En að regnþrungnu kvöldi hins
19. maí, þegar Lindbergh og
aðstoðarmenn hans voru á leið
til kvöldverðar, boðaði veður-
spáin gjörbreytingu á veðrinu
— stormum og þokubeltum létti
yfir beinustu flugleiðinni til
Frakklands. Nú hófst þrettán
tíma þrotlaust starf — allt frá
því að flytja um borð fimm
brauðsneiðar, fimm lítra af
vatni, vegabréf og nokkur kynn-
ingarbréf — til þess að draga
Anda St. Louis („Spirit of St.
Louis“) — en svo hét flugvélin
— yfir á Rooseveltflugvöllinn,
sem hafði lengri rennibraut.
Þegar Lindbergh settist í flug-
mannssætið klukkan 7,45 morg-
uninn eftir, hafði hann ekkert
sofið í 24 tíma — en þess átti
hann eftir að iðrast mjög er
líða tók á flugið.
Svipur flugmannsins á með-
an hann hlustaði á gang hreyf-
ilsins gaf ekki til kynna, að
hættulegasti hluti ferðarinnar
biði hans á næstu mínútum —