Úrval - 01.12.1956, Page 27
UM HÖFUND STREPTOMYCINS
25
ræktuðu tilteknar jarðvegs-
bakteríur, gáfu þeim sýkla og
fylgdust síðan með því sem
gerðist. Þannig tóku þeir fyrir
hverja tegund jarðvegsbaktería
á fætur annarri.
Þegar hér var komið, hafði
penisillín verið uppgötvað að
nýju. En sumir sýklar voru ó-
næmir fyrir því. Brýn þörf var
því á öðrum fúkalyfjum. Waks-
man einbeitti sér að leitinni að
slikum sýklabönum, sem eins
og penisillín væru skaðlausir
fyrir mannslíkamann.
Fyrsta áhrifarika fúkalyfið
— streptothricin — tókst hon-
um að einangra árið 1942. En
það var of eitrað til þess að
óhætt væri að dæla því í menn.
Sex mánuðum síðar hafði hann
fundið töfralyfið streptomycin,
er brátt hlaut viðurkenningu
sem einhver ágætasti læknis-
dómur í annálum læknavísind-
anna. Fyrst og fremst í bar-
áttunni gegn berklunum. Það
var fyrsta lyfið, sem notað hafði
verið með árangri gegn berklum
(sem enn eru tíðust dánaror-
sök fólks á aldrinum 15—35
ára). Aðrir skæðir sjúkdómar
urðu einnig að lúta í lægra
haldi fyrir því.
Dr. Waksman áætlar, að
hann og aðstoðarmenn hans
hafi einangrað um 10.000 teg-
undir jarðvegsbaktería og próf-
að hæfileika hverrar um sig til
þess að hefta vöxt sýkla. Um
10% höfðu þann hæfileika.
Þessi hópur var tekinn til nán-
ari rannsóknar og niðurstaðan
af þeim rannsóknum var sú, að
Waksman hafði á hendi tíu
efnasambönd, sem voru ban-
væn sýklum. Þessi efni voru
síðan reynd á dýrum. Eitt
þeirra var streptomycin.
Fram að þeim tíma hafði
lyfjaverksmiðjan Merck & Co.
stutt þessar tilraunir fjárhags-
lega, með því fororði, að hún
hefði rétt til að hagnýta sér á-
rangurinn ef einhver yrði. En
brátt varð ljóst, að streptomycin
var mannkyninu alltof dýrmætt
til þess að einni verksmiðju væri
treystandi til að ráða yfir því.
Merck & Co. afsalaði sér einka-
rétti á framieiðslu þess og var
hún þá gefin frjáls. Seinna voru
heilar verksmiðjur reistar ein-
göngu til framleiðslu á strepto-
mycin.
Þegar Merck afsalaði sér
einkaréttinum á streptomycin,
afhenti Waksman Rutgers há-
skóla sinn einkarétt og alla
þóknun af væntanlegri fram-
leiðslu. En stjórn háskólans var
á einu máli um það, að hinum
óeigingjarna vísindamanni bæri
einhver þóknun fyrir uppfinn-
ingu sína og lagði til hliðar
handa honum 20% af afgjald-
inu af streptomycinframleiðsl-
unni. Megnið a.f því fé sem hann
hefur fengið hefur hann varið
til rannsókna í líffræði í ein-
hverri mynd: til að styrkja
rannsóknir á tilteknum við-
fangsefnum, til útgáfu á grein-
argerðum um rannsóknir í líf-