Úrval - 01.12.1956, Qupperneq 34
32
ÚRVAb
anlegu efnin, heldur er fram-
leiðsluaðferðin þannig, að við
meðhöndlunina breytist nokkur
hluti hinna óuppleysanlegu
efna þannig, að þau verða upp-
leysanleg. IJtkoman verður sú,
að við vinnslu kaffidufts nýtast
um 30% af þyngd hins brennda
kaffis. Þessi bætta nýting næg-
ir ekki einungis til þess að reka
dýrar verksmiðjur til vinnslu á
kaffidufti, heldur ætti hún þeg-
ar til lengdar lætur að hafa í
för með sér lækkun á kaffi,
þannig að ódýrara verði að nota
kaffiduft en brennt og malað
kaffi.
Á móti þessum kostum vega
svo ýmsir ókostir, og er sá mik-
ilvægastur, að kaffi sem lagað
er úr kaffidufti, hefur ekki
sama ilm og kaffi úr nýmöluðu
kaffi. Hjá því verður ekki kom-
izt að nokkur hluti af ilmefn-
unum rjúki burt eða breytist
við vinnslu kaffiduftsins.
Kaffiduftsvinnslan fer fram
í tveim atrennum: fyrst eru hin
uppleysanlegu efni leyst úr því;
síðan er kjarnasafinn, sem
þannig fæst, þurrkaður og verð-
ur þá kaffiduftið eftir.
Kjarnakaffið mætti setja á
fíöskur og selja þannig, og
gætu neytendurnir þá þynnt það
út eftir smekk. Þetta er raun-
ar gert í nokkrum löndum, en
vegna minni fyrirferðar, ódýr-
ari umbúða og meira geymslu-
þols þykir hentugra að taka
vatnið úr og selja kaffið sem
duft.
Þurrkunin fer fram með að-
ferð, sem nefnist úðaþurrkun.
Hún er í því fólgin, að kjarna-
kaffinu er dælt sem þéttum,
fínum úða inn í þurrkarann,
þar sem hann mætir heitum
loftstraum. Hinir örsmáu drop-
ar gufa samstundis upp, en
föstu efnin í þeim mynda ör-
lítil korn, er falla sem duft til
botns i þurrkaranum.
Kaffiduftið er undir eins látið
í loftþéttar dósir eða glös og'
er þá tilbúið til sölu. Kaffiduftið
er mjög rakasækið, m. a. vegna
þess hve það er snöggþurrkað,
og verður því alltaf að geyma
það í loftþéttum ílátum.
Enda þótt tæknin við kjarna-
vinnsluna og þurrkun kaffi-
duftsins sé mjög fullkomin, tap-
ast eins og áður segir talsvert
af ilmefnum bæði við kjarna-
vinnsluna og þurrkunina. Miklu
fé er varið til að gera tilraunir
með aðferð til þess að varðveita
ilmefnin, og hefur verið sótt um
einkaleyfi á mörgum þeirra.
Enn hefur þetta ekki tekizt,
en þegar þess er gætt, hve rík
áherzla er lögð á þessa tilrauna-
starfsemi, mun óhætt að spá
því, að þess verði ekki langt að
bíða að kaffiduft með öllum ilm-
efnum kaffisins komi á mark-
aðinn, kaffiduft, sem í dósinni
angar eins og nýbrennt og mal-
að kaffi, og sem úthrært í sjóð-
andi vatni kitlar ilmtaugarnar
jafnljúflega og nýmalað kaffið
á bláu könnunni hennar
mömmu.