Úrval - 01.12.1956, Síða 73
Hý, læknisfræðileg' uppgötvun, sem gerir
bamlausmn koniun kleift að eignast
böm og létta mun þjáningar
þúsunda kvenna.
Ný von fyrir harnlaus hjón
Úr „Politiken".
EITT erfiðasta vandamál
læknavísindanna hefur um
langt skeið verið að finna ráð
til þess að hjálpa barnlausum
hjónum til að eignast börn. Ó-
frjósemisrannsóknir hafa borið
sorglega lítinn árangur, en nú
virðist svo sem fundið sé ráð
til þess að hjálpa fjölmörgum
þeirra kvenna, sem ekki geta
átt börn. Það er ungur, danskur
læknir, dr. Erik G. Christiansen,
aðstoðarlæknir við Ríkisspítal-
ann í Kaupmannahöfn, sem með
rannsóknum sínum hefur fund-
ið þetta ráð. Aðferðin, sem hann
hefur fundið, mun jafnframt
koma að liði mörgum þeim kon-
um, sem þjást af blóðverkjum.
Ekki er fátítt, að konur séu
frá vinnu í einn eða. fleiri daga
í mánuði hverjum A'egna van-
líðunar í sambandi við tíðir.
Þessi óþægindi er nú hægt að
fyrirbyggja með hinni nýju að-
gerð. Er hér um verulegt þjóð-
hagslegt atriði að ræða, því að
þeir vinnudagar eru ótaldir, sem
fara forgörðum af þessum sök-
um.
Ekki er fátítt, að konur geti
ekki átt börn, þótt þær lifi í
hjónabandi, sem er á allan hátt
eðlilegt og gott, og þótt ekki
verði fundin nein sýnileg orsök
til ófrjósemi þeirra. Kvensjúk-
dómalæknum hefur reynzt erf-
itt að hjálpa þessum konum,
þótt stundum hafi það tekizt.
Prófessor Rydberg við Ríkis-
spítalann hefur í mörg ár verið
þeirrar skoðunar, að þessi ó-
frjósemi sé að kenna röskun
á hormónjafnvægi í líkamanum,
og tilraunir með hormóngjafir
virtust benda til að þetta væri
rétt. Samt hafa þessar hor-
móngjafir verið umdeildar,
einkum vegna þess, að enginn
mælikvarði var til um það hve
stóran skammt sjúklingarnir
þurftu.
Dr. Christiansen fjallaði um
þetta atriði í doktorsritgerð,
sem hann varði við Hafnarhá-
skóla síðastliðið sumar. Áður
en hann hóf tilraunir sínar
höfðu læknar fylgzt með hor-
móngjöfunum með þvagrann-
sóknum, en þær tóku margar
vikur áður en niðurstaða fékkst.
Honum hugkvæmdist þá, að
samskonar rannsóknir mætti
gera með því að athuga hor-
mónmagnið í blóðinu. Það kom
í ljós, að finna mátti kvenkyns-