Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1972, Page 7

Læknaneminn - 01.03.1972, Page 7
LÆKNANEMINN 7 veikir fingurgómana, læsir sig þaðan um allan líkamann, þangað til hann loks kallar sálina frá líkamanum með þýðu andvarpi eða í svefni. Sumir liggja einn eða tvo sólarhringa, sumir dægur, sumir ekki einu sinni eina stund. Einn bær í Neshreppi fór í eyði á þenna hátt, annar í Grunnavík. Einnig ritar Sæmundur Árnason, (frá Hóli í Bolungarvík, d. 1634), þann 23. febrúar, að á þessum vetri hafi nokkrir menn í ná- grannasveit sinni á Vesturlandi (Vestfjörðum réttara) orðið bráð- dauðir (subitanea morte), sumir á ferð, aðrir sitjandi eða standandi, og það svo, að í einu og sama vet- fangi hafi þeir verið lífs og liðnir; hann telur upp tvo úr Víkunum, sömuleiðis tvo úr Hraunssókn. Hinn fyrri dó, er hann var að leysa hey í heygarði til gjafar, en sá síðari datt niður á göngu og and- aðist. Kona nokkur á Kirkjubóli í Önundarfirði dó sitjandi við að mjólka kú. I Súgandafirði urðu tvær konur og einn karl bráðdauð. I Skutulsfirði tveir. I Arnardal tvær konur. í Bolungavík karlmað- ur og kvenmaður. Sá kvenmaður sat alheill heilsu við eld, féll fram á logann og dó. f prestakalli séra Ólafs Magnússonar (á Stað í Steingrímsfirði um 1594—1614) dóu á einni viku tuttugu mann- eskjur, og fimm bæir fóru nær því í eyði. Á Stað í Steingrímsfirði voru átta lík jarðsett á einum degi. Á Kálfanesi [einum einasta bæ] urðu tíu eða ellefu bráðdauð- ir. Sunnlendingar sáu líka þetta haust nokkur dæmi þessarar sótt- ar, (morbi), sérstaklega í sumum sjávarplássum." ,,Þann 29. febr. sama ár (1606) ritar Sæmundur Árnason, að mjög margir menn í ísafjarðarsýslu hafi dáið þetta ár snöggum dauða eins og fyrr er lýst, og flestir þeirra á ferð“, (75, p. 22—24. Ég hef bætt við skýr- ingunum innan sviga, sem flestar eru eftir 74). Lýsing Snæbjarnar á sjúkdómnum, sem gekk í Tré- kyllisvík, gæti bent til þess, að um bráða lömun hafi verið að ræða, líkri þeirri, er verður í botulismus, matvælaeitrun af völdum clostridi- um botulinum. Vegna þess að veik- in byrjaði í fingurgómum, liggur kannske mytilismus beinna við, eitrun af kræklingi (mytilus edulis), en í honum geta stundum myndazt eiturefni, sem verka líkt og curare, og hefst sú eitrun með nálardofa. Trékyllisvík var eitt af helztu hákarlaverum landsins, en eins og Sveinn Pálsson tekur fram, eru þau illræmd að því, hve margir verða bráðkvaddir í þeim. Og má það einnig vera ástæðan til þess, að snemma lagðist það orð á, að nýr hákarl væri varasöm fæða. Um það farast Horrebow svo orð: „Kiodet af denne Fisk smager meget vel at spise, men det er befundet, at, naar de spise formeg- et eller idelig deraf fersk, faae de gierne slemme Sygdomme deraf, og doe pluseligen bort“ (70, p. 230). Og í ferðabók Eggerts og Bjarna segir svo: „Haaens Kiod ferskkaagt holdes for en usund Spiise, thi i de haarde Aaringer, da Trekylles-Viigens Indvaanere bleve nodte til at bruge dette, bleve de angrebne af stærk Hæmorragie, eller nogle Gange igientagne Styrtninger af Næseblod, hvorpaa fuígte Besvimmelser, og endelig inden kort Tiid Doden. Andre, som have spiist af dette ferske Kiod, fortælle, at heele Legemet har efter Haanden begyndt at svulme, og er geraadet i en skorbutisk Fordærvelse, som sædvanlig er bleven antagen for Spedalskhed"
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.