Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1972, Side 68

Læknaneminn - 01.03.1972, Side 68
60 LÆKNANEMINN eins og þeim sýnist án þess að vekja athygli. Námið sjálft get ég lítið dæmt um, af því ég hef aldrei verið í háskólanámi erlendis. Ég veit samt, að menn læra 1 öllum meginatriðum það sama hér og í Skandinaviu, enda mjög lík þjóðfélög. 1 gamla námskerfinu lærðum við samt greinilega meiri anatómiu, en fáum því miður ekki kennslu í félagsiæknisfræði, nema óbeint í t. d. geðlækningum. Hér í deildinni eru bæjarvaktirnar með vaktlækni mjög jákvæð og athyglisverð tilraun, enda er kennsla í heimilislækn- ingum aðeins á tilraunastigi, einnig á hinum Norðurlöndunum. Smæð flestra árganga hér stuðlar að betri kynnum milli kennara og nem- enda. Sumir kennarar eru mjög dug- legir að virkja nemendur í kennslunni, annaðhvort með því að stúdentar flytja fyrirlestra fyrir samstúdenta sína eða gera þá að lausráðnum kennurum fyrir yngri árganga, hvort tvegga með yfir- leitt mjög góðum árangri. Hitt er annað mál, hvort stúdentar taka sjálfir nægilegt frumkvæði i venjulegum kennslustundum. Mér virð- ast þeir vera of tillitssamir gagnvart kennurum og gera of sjaldan athuga- semdir, ef eitthvað orkar tvímælis, eða ef kennari útskýrir ekki á fullnægj- andi hátt. Þannig er þvl einnig farið í skandinavískum skólum og stafar af því, að nemendur fá hvergi þjálfun I að tjá sig munnlega. Ef til vill eru kenn- arar ennþá svo mikil ,,autoritet“, að menn hika við að gagnrýna í tímanum, þó auðvitað megi baktala þá eftir tím- ann! — 1 bandarískum skólum er hins vegar frá 1. bekk í barnaskóla lögð mikil áherzla á, að nemendur spyrji og geri athugasemdir í tíma (og ótíma, jafnvel!). Stúdentar halda því hins vegar stund- um fram, að Islendingar séu hlédrægir að eðlisfari, og lýsi það sér bæði í kennslustundum og gagnvart ókunnug- um. Það er nokkuð almenn skoðun hjá útlendingum, sem byrja hér í skóla, að erfitt sé að komast i kynni við Islend- inga í byrjun. Þetta held ég stafi mik- ið af því, að báðjr aðilar eru hræddir við að segja eitthvað óviðeigandi, og hvorugur þorir að taka frumkvæðið. Eg man vel eftir fyrsta garðsballinu, þeg- ar nokkrir bekkjarbræður sögðu mér, að þá hefði lengi langað að ræða við mig, en-------- — . Nú eru tungumálaörðugleikar sjálf- sagt mikilvægur þáttur í þessum vanda- málum. Ég held, að vandinn sé meiri, einmitt vegna þess að Islendingar kunna nógu mikla skandinavísku til að skilja nauðsynlega hluti. Sumir tala hana vel, til mikils léttis fyrir nýkom- inn Skandinava, sem allt í einu þarf að aðlaga sig nýju námi, fólki, umhverfi og þjóðfélagi, til viðbótar við málið. En í reynd er það frekar bjarnargreiði að tala ekki strax íslenzku við menn, sem ættu að læra hana sem fyrst, til að geta fylgzt með i skóla og lifað eðlilegu lífi. Sjálfur var ég svo heppinn að vinna með unglingum, sem skildu ekki dönsku! úti í sveit, sumarið áður en ég byrjaði að læra. Ég held, að allir hefðu gott af svipaðri reynslu eða a. m. k. íslenzkunámskeiði áður en skólinn hefst, jafnvel með lokaprófi eins og tíðkast fyrir erlenda stúdenta í Þýzkalandi. Það eru ekki aðeins praktískar ástæð- ur fyrir því að læra sem fyrst tungu- málið í því landi, sem maður er gestur í. 1 litlum löndum eins og Islandi og Noregi finnst mönnum það ánægjulegt og bera vott um áhuga á að kynnast landi og þjóð, ef útlendingar leggja það á sig að læra tungu landsins. Öfugt þykir þeim það hálfgerð móðgun við sig, sérstaklega ef aðrir reyna ekki að læra málið, þegar til lengdar lætur. Ég held þannig, að bæði Norðmenn og Islendingar séu yfirleitt þjóðernissinn- aðir í eðli sínu. 1 Noregi sér maður það greinilega í EBE-málinu, þegar meiri- hluti landsmanna er nú á móti innlim- un í bandalagið, þó að svo til öll dag- blöð, fjórir af fimm þingflokkum og allur þorri efnahagslífs- og verkalýðs- forystu heldur uppi sífelldum áróðri fyr- ir inngöngu Noregs. Islendingar eru sjálfir yfirleitt opin- skárri og harðorðari á eigið þjóðfélag en tíðkast erlendis. Þjóðernistilfinning- arnar koma hins vegar í ljós, ef ein- hver leyfir sér að gagnrýna Island á er- lendum vettvangi, hvort sem það eru er- lendir fréttamenn, íslenzkir stúdentar erlendis eða Halldór Laxness sjálfur. Þess vegna fannst mér fróðlegt að taka eftir því, hvort öði-um stúdentum fyndist það óviðeigandi, að útlendingur tæki þátt í stúdentapólitík. Mér til ánægju var því næstum undantekningalaust vel tekið. Þátttaka í félagslífi, hvort sem um er að ræða kristileg eða pólitísk félög, íþróttafélög, deildarfélög eða aðra hópstarfsemi, er einmitt bezta leiðin til að kynnast ,,innfæddum“, og hafa bæði ég að aðrir haft gagn og gaman af.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.