Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1972, Page 14

Læknaneminn - 01.03.1972, Page 14
LÆKNANEMINN u dreifa um 14. öld, þar notum við báðir sömu heimildir. Þau tvö ár, sem ég tel umfram Thoroddsen, munu vera árin 1300 og 1375. Ár 1300 segja annálar hallæri mikið af Heklugosi, án þess að geta um mannfall, en ár 1301 er talað um mannfall „fyrir jól og eftir“, sem merkir, að það hafi hafizt síðla árs 1300. Af þeirri ástæðu eru bæði árin talin mannfellisár af vaneldi í skránni um hungur- sóttir. Þá atburði, sem í skránni eru taldir, samkvæmt Lögmanns- annál (VII), til áranna 1374, 1375 og 1376, telur Thoroddsen gerast ári síðar (1375, 1376 og 1377) og fer um það eftir Flateyjarannál (IX), og fellur þá á sama ár, 1376, fall fátækra um allt land (IX) og manndauði um Vestfjörðu, sem aðeins Gottskálksannáll (VIII) getur um. Þannig verður mann- fellisárið aðeins eitt (1376) hjá Thoroddsen, en tvö (1375 og 1376) í skránni um hungursóttir. Það er auðsætt, að hvort réttara muni vera, eitt eða tvö mannfellisár, fer eftir því, hvort Gottskálksannáll (VIII) á þessu árabili sé sam- hljóða IX eða VII um árfærslu. Árferðið 1376 í VIII kemur heim við VII, en ár 1377 í IX. Um veður- far hin árin er ekki getið í VIII. Tímasetning annarra viðburða er sem hér segir: Utanferð Jóns Hóla- biskups, 1374 VII og VIII, 1375 IX. Utkoma Jóns biskups 1375 VII og VIII. 1376 IX. IJtkoma Andrésar hirðstjóra 1376 VII og VIII, 1377 IX. Andlát Eyjólfs ábóta í Veri 1377 VII og VIII, 1378 IX. Af þessu er ljóst, að VIII árfærir viðburði eins og VII, og að árið 1376 hjá VIII og IX á ekki við sama árið, svo mann- fellisárin verða tvö. Skráin um hungursóttir tekur aðeins til þess tímabils, er segja má, að byggi á nokkurn veginn sambærilegum heimildum, annál- um og sagnfræðiritum. En þegar á 19. öld er völ mun traustari heim- ilda um hungursóttir en þessara, þar, sem eru töflur prestanna yfir dána og síðar heilbrigðisskýrslur (sjá 5. kafla). Raunar má segja, að þessi breyting verði upp úr 1784, er prestum var gert að geta dánarorsaka í töflum sín- um. Thoroddsen (79) telur, að mannfall til muna af sulti, hafi orðið tvö ár alla 19. öldina, og eru það eflaust árin 1803 og 1804. Þau ár létust 1459 menn umfram fædda, og af þeim dóu úr hungri og vesöld fyrra árið 119 og 68 menn hið síðara, auk þeirra sem létust úr skyrbjúg, blóðsótt og bráðdauða. En hann telur bersýni- lega, að ekki hafi orðið mannfall til muna af sulti stríðsárin 1811— 1814, þrátt fyrir eftirfarandi um- mæli hans: 1811 ,,Þá féll fólk af bjargleysi á Austfjörðum og var þar hið mesta harðæri" (79, p. 210—211) ,,í Sauðlauksdalssókn- um varð um veturinn 21 maður bráðkvaddur til miðs einmánaðar11 (p. 212). 1812 ,,Þá gekk blóðsótt og fólk dó sumstaðar úr vesöld og hor.“ ,,Þá urðu 54 bráðkvaddir á Vesturlandi og Skagaströnd, af hákarlsáti að ætlað var“ (p. 212). 1813 „Þrátt fyrir gott árferði voru nú hin mestu bágindi. Lá við mannfalli hvervetna og féll nokk- uð við sjóinn“ (p. 214). 1814 „Var enn bjargarleysi á Suðurlandi, dýrtíð og harðæri sakir fiskleysi" (p. 215). Þessi 4 ár létust 1022 umfram fædda, og gengu þó engar sérstakar farsóttir á þeim, svo vafalaust er, að hallæri á sinn drjúga þátt í þessu mannfalli. Auk þess, sem þegar er sagt um fjölda bráðkvaddra, þá er tekið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.