Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1972, Side 120

Læknaneminn - 01.03.1972, Side 120
LÆKN ANEMINN 10 Jf un og framkomu eða sem óskipu- leg framsetning orða og athafna, skortur á dómgreind o.s.frv. Til- litssemi hinna nánustu er auðvit- að slík, þegar gamli maðurinn eða konan eru að ,,kalka“, að þetta ástand nær að þróast upp að því marki, að sjúklingurinn er ekki húsum hæfur. Arteriosclerosis cerebri gengur venjulega fyrir sig þannig, að sjúklingi hnignar skyndilega, (getur lýst sér sem heilablóðfall, en oftar eru einkenni óljós), hann réttir sig eitthvað við, en versnar svo aftur, og kannski ber nú meira á einhverju öðru en í fyrsta áfallinu, en hann réttir ögn við aftur, og svo svona áfram koll af kolli. Lokamyndin er skort- ur á áttun, rökréttri hugsun og dómgreind, gleymska, einkum á það, sem er að gerast, áhugaleysi, jafnvel um hinar óhjákvæmilegu þarfir daglegs lífs einsog að borða og klæðast og hreyfa sig, in- continence, taltruflanir, marghátt- uð dyspraxia og dysgnosia, óeðli- legur grátur og hlátur, afbrigði- legur limaburður með auknum ton- us og klaufsku og líkist oft Parkinsonsveiki, en hefur útbreidd pyramidalbrauta einkenni einnig. Undir lokin er og ekki óalgengt að fá kyngingar- og öndunarerfið- leika, og er þá venjulegast skammt undan. Krampaköst eru sjaldgæf við þróun þessa ástand. Ástand einsog það, sem lýst var, hjá öldruðum sjúklingi, er undan- tekningalítið tilkomið vegna arteriosclerosis cerebri. Þetta er arteriosclerosis cerebri. Hjá þess- um sjúklingum er rétt að miða rannsóknir við höfuðmyndir, heila- línurit og skann. Þær eru áhættu- og áreynslulausar og nægjanlegar í þessum tilfellum til þess að úti- loka frontal eða miðlæg æxli, er gætu gefið svipaða mynd. Sjálf- sagt er að gera áhættulausar blóð- og þvagrannsóknir og taka hjarta- línurit, en ástæðulaust er að gera æðamyndir. Jafnvel þótt þrenging fyndist í einni hálsæð, er árangur af aðgerð vafasamur, ef útbreidd- ar þrengingar eru í heilaæðunum sjálfum. Það er engin sérhæf með- ferð að gagni við arteriosclerosis cerebri. Blóðþynning kemur þar að litlu gagni. Æðaútvíkkandi lyf skulu ekki fordæmd, en vert er að minnast þess, að sá hlutfallslegi súrefnisskortur eða aukning á koldioxidi, sem til staðar er í heila við þetta ástand, hefur í för með sér þá hámarksvíkkun á æðum, sem verður við komið. Æðaútvíkk- andi lyfjum er því ofaukið, og ég myndi benda mönnum á að nota þau skaðaminnstu og ódýrustu, ef þeir vilja nota þau á annað borð, eftir sem áður. Meðferð er því al- menns eðlis og myndi síðan beinast að meðverkandi sjúkdómum, ef fyndust. Hinsvegar er það svo, að líf'ið tekur enda, og sjúklingur með arteriosclerosis cerebri hefur lokið því, þegar komið er á það stig, sem þegar er nefnt, þótt enn dragi hann andann. Þessum sjúklingum líður ekki illa á sama tíma og við getum ekki breytt gangi mála. Hatramm- ar rannsóknir og hetjulund gagn- vart meðferð á því ekki við, og í ljósi þeirra staðreynda verður læknirinn að taka sínar samvizku- ákvarðanir. Arteriosclerosis cerebri sam- kvæmt framangreindri mynd hjá yngra fólki vekur hinsvegar önnur viðbrögð og þau skiljanleg. I fyrsta lagi væru auknar líkur fyr- ir því, eftir því sem sjúklingur er yngri, að annað væri á ferðinni, sem væri þá annaðhvort æxli eða einhver degenerativur sjúkdómur af annarri orsök en arterio- sclerosis. Sjálfsagt væri því hér
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.