Úrval - 01.12.1961, Side 22
30
ÚH VAL
stórt og bilar aS lokum vegna
ofreynslu.
Þá getur of hár blóðþrýsting-
ur og valdið skemmdum á æð-
unum sjálfum. Hann getur til
dæmis valdið sjóndepru og að
lokum blindu með skemmdum
á háræðaneti sjónhimnunnar.
Skemmdir á æðaneti nýrnanna
verða til þess, að þau geta ekki
losað sig við úrgangsefni, sins
og til er ætlazt, og það getur
valdið þvageitrun. Skemmdir á
æðum þeim, sem flytja eiga
heilanum nauðsynlega næringu,
geta valdið heilablæðingu eða
heilablóðfalli. Þá þykir og sann-
að, að of hár blóðþrýstingur
flýti mjög fyrir æðakölkun, sem
getur valdið hjartabilun, — og
er karlmönnum, sem hafa of há-
an blóðþrýsting, fjórum eða
fimm sinnum hættara við því
meini, en konum, sem þjást af
of háum blóðþrýstingi, allt að
því tuttugu sinnum hættara en
þeim, sem hafa eðlilegan blóð-
þrýsting.
Getur fólk haft of háan blóð-
þrýsting án augljósra einkenna?
Læknar segja, að fólk geti jafn-
vel þjáðst af hættulega of háum
blóðþrýstingi, án þess að hann
segi til sín með augljósum ein-
kennum. Dr. James Conway, sem
stjórnar rannsóknarstarfsemi á
þessu sviði við Michigan-há-
skóla, segir það tíðast, að lækn-
ar uppgötvi sjúkdóminn við al-
menna skoðun á sjúldingi, sem
ekki hafi jafnvel um neina sér-
staka vanlíðan að kvarta. Það
á sér líka oft stað, að rætur
ýmissa kvilla, svo sem höfuð-
verkjar, þreytu, sljóleika, hjart-
sláttarkasta, svefnleysis og fleiri
þrauta, sem hann veldur, eru
ranglega raktar annað, þar sem
þeir geta að sjálfsögðu stafað af
öðrum orsökum.
Hvað veldur of háum blóð-
þrýstingi? Læknar viðurkenna,
að enn sé þekkingu sinni mjög
ábótavant, að því er orsakirnar
varðar. Yitað er þó, að sjúk-
dómurinn á sjaldnast rætur að
rekja til líkamlegra vanheilinda,
svo að fundið verði, — nema
hvað fyrir getur komið, að
þrengsli í æðagöngum nýrn-
anna, til dæmis vegna bólgu í
nýrnahettunum, megi um kenna.
En slíkar orsakir fyrirfinnast
ekki í að minnsta kosti 90 til-
fellum af hverjum 100, heldur
kallast sjúkdómurinn þá „frum-
lægur.“
Áður var talið, að barnsmeð-
ganga og tíðatruflun gæti átt
sinn þátt í því, að konur fengju
of háan blóðþrýsting, en nú
þykir sannað, að það sé að
minnsta kosti fátítt. Og þó að
mataræði geti aukið á sjákdóm-