Úrval - 01.12.1961, Page 28
36
Ú R VA L
frumunni og sömu sæðisfrum-
unni og hafa þess vegna ná-
kvæmlega sömu erfðavísa. Þeir
hljóta að verða af sama kyni og
eru sönn eftirmynd hvor annars
á allan hátt, stundum eins og
spegilmynd', jafnvel annar rétt-
hentur, hinn örvhentur.
Við læknisaðgerðir, sem gera
nauðsynlegt að græða heilbrigt
skinn yfir sár, verður að taka
það af sjúklingnum sjálfum,
nema því aðeins að hann sé
einsggjatviburi; þá má taka það
af hinum tvíburanum.
Nú hefur einnig verið sannað,
að unnt er að taka líffæri eins
og nýra úr öðrum eineggjatví-
buranum og græða í hinn. —
Og ekki er nóg með það. Sams
konar rafmagnssveiflur liggja
út frá heilastarfsemi þeirra, og
það er ef til vill þetta, sem
gerir það að verkum, að þeir
vaxa upp með sama hætti og
líkjast hvor öðrum svo mjög.
Frægasta dæmi um eineggja-
tvíbura, sem voru eins að öllu
leyti, ytra og innra, eru þeir
Edwin Iske og Fred Nestor.
Þeir voru ættlciddir og aldir
upp hvor af sínum fósturfor-
eldrum og hlutu ólík ættarnöfn,
þekktust ekki og vissu ekkert
hvor um annan.
En báðir sýndu mikla hæfi-
leika til að vinna við rafmagns-
vélar og voru ráðnir til sömu
starfa hjá sínu fyrirtækinu hvor,
þótt þúsund mílur skildu á milli.
Það voru starfsbræður þeirra,
sem höfðu fyrst orð á þvi, hve
líkir þeir væru. Og svo hittust
þeir, og skyldleikinn varð á
allra vörum. Þeir voru ekki að-
eins líkir i útliti og andlegum
hæfileikum, heldur einnig varð
ævi ])eirra lík. Þeir höfðu
kvænzt sama árið, konur þeirra
voru ákaflega líkar í sjón og
raun, voru jafngamlar, og þar
við bættist, að báðir áttu einn
son. Og svo áttu þeir bræður
lika sinn hundinn hvor, sömu
tegundar, og höfðu gefið báðum
sama nafn.
KARLMAÐURINN elskar með augunum, konan með eyrunum.
■— Oscar Wilde.
EIGI skal haltur ganga, meðan báðir fætur eru jafn langir.
— Gunnlaugur ormstunga.