Úrval - 01.12.1961, Síða 32
40
ÚR VAL
Adams syni sínum, „þótt ég' viti,
a8 hún verður mjög óvinsæl i
Norðurríkjunum ... Ég held þú
hafir haft rétt fyrir þér.“
Þrát fyrir alla þá ólgu, sem
Adams yngri kom af stað, var
það samt ekki fyrr cn 1807, að
leiðir hans og flokksins urðu að
skilja að fullu og öllu. Málið,
sem þar réð úrslitum, varðaði
utanríkisstefnu þjóðarinnar. Er
samskipti okkar og Breta tóku
að versna, tóku Bretar skip okk-
ar, gerðu farminn upptækan og
þröngvuðu sjómönnum okkar
þúsundum sainan í brezka sjó-
herinn. Adams, sem gat nú ekki
lengur dulið fyrirlitningu sina
á þeim kaupmönnum í Sam-
bandsflokknum, sem umfram
allt vildu frið við Breta, bar ár-
ið 1800 fram margar tillögur,
þar sem yfirgangur Breta er for-
dæmdur og forsetinn beðinn um
að krefjast skaðabóta fyrir þau
skip, sem tekin höfðu verið.
Sambandssinnar stóðu allir sem
einn gegn þessum tillögum Ad-
ams svo og gegn tillögum um að
takmarka innflutning frá Bret-
landi, sem naut stuðnings Ad-
ams.
Loks skaut brezka herskipið
Leopard á bandarísku freigát-
una Chesapeake sumarið 1807.
Alimargir af bandarísku áhöfn-
inni voru drepnir eða særðir.
Adam fylltist nú bræði og fannst
tími til kominn, — hvað sem
öllum flokksmálum liði, —• að
grípa til ákveðinna mótaðgerða.
Þegar Jefferson bað þingið
að gripa til mótaðgerða með
þvi að lögfesta hafnbann, sem
mundi stöðva alla frekari utan-
rikisverzlun, varð John Quincy
Adams manna fyrstur til að
risa úr sæti sinu og lýsa stuðn-
ingi sínum, enda þótt slík lög-
festing hefði hinar ógnvænleg-
ustu afleiðingar fyrir Massa-
chusetts, sem var um þær mund-
ir eitt mesta verzlunarríki lands-
ins. Og hann lét sér ekki nægja
að styðja hafnbannið, heldur
flutti hann tillögu þess efnis,
að brezkum skipum væru mein-
aðar allar siglingar um banda-
ríska landhelgi. „Þetta mun
kosta okkur báða þingsætin,"
sagði Adams við félaga sinn, er
málin höfðu náð fram að ganga.
Þetta reyndust orð að sönnu.
Þegar hafnbannið var lögfest
með stuðningi hans, reis upp
mikil mótmælaalda í Massachu-
setts. Hafnbannið stöðvaði alla
skipasmíði, eyðilagði sjóverzl-
unina, og fiskiskipum var lagt;
stöðnun, gjaldþrot og brottfiutn-
ingur manna úr fylkinu daglegir
viðburðir. Leiðtogar sambands-
sinna héldu þvi fram, að hafn-
bannið væri tilraun frá hendi
Jeffersons til að reyna að hinda
endi á velgengni Nýja-Engiands