Úrval - 01.12.1961, Qupperneq 36
44
Ú R VA L
Bjarni Jónsson. Hann fæddist
18. janúar 1861 a?5 Kirkjufelli í
Eyrarsveit, en foreldrar hans
voru Marta Sigriður Jónsdóttir,
prests .Benediktssonar, og Jón
söðlasiniður og bóndi Guð-
mundsson frá Bilduhóli á Skóg-
arströnd. Þessu,m dreng var svo
sem ekki illa skotið inn í ættir
landsins, og má til þess nefna,
að séra Jón Benediktsson, afi
hans, og Jón Sigurðsson forseti
voru systrasynir.
Stefán fluttist kornungur með
foreldrum sínum að Keisbakka
og ólst þar upp til 15 ára ald-
urs. Þá andaðist móðir hans, og
faðir hans brá búi, en pilturinn
fór í vinnumennsku þar í sveit-
um. Gekk svo fram nokkur ár,
þar til Stefán réðst til trésmiða-
náms'hjá Boga trésmið Smith
að Arnarbæli á Fellsströnd. Var
námstíminn áætlaður þrjú ár.
En skömmu eftir að námið var
hafið, kom pilturinn með smíð-
isgripinn góða, langspilið, til
meistara síns og sýndi honum
dund sitt frá fermingarárinu.
Fannst meistaranum svo mikið
til um gripinn, að hann stytti
námstíma piltsins um eitt ár.
Hann útskrifaðist þvi að tveim-
ur árum liðnum sem fullgildur
siuiður, hélt siðan út í veröld-
ina að leita sér fjár og frama,
og leiðin lá fyrst til Reykjavík-
ur.
Rúmlega tvítugur hóf liann nú
húsasmíðar á eigin spýtur og
var yfirsmiður við nokkrar
byggingar i Reykjavík og á
Akranesi. Á þeim árum byggði
hann einnig kirkju að Kolbeins-
stöðum á Mýrum.
En það mátti af ýmsu ráða,
að þesi ungi maður mundi fær-
ast meira í fang, er stundir liðu.
Hann var fullur af hugsjónum,
eldfjörugur í andanum, silesandi
um hagfræði, vélfræði og bún-
aðarhætti, tápmikill og áræðinn
til framkvæmda, þótt fé væri
tiðum af skornum skammti, ó-
trauður að leggja inn á nýjar
brautir. Það var því sízt að
undra, þótt lcið hans lægi
vestur um liaf til vélalandsins,
þar sem hjólin sungu. En það
var einnig eins sjálfsagt og eðli-
legt, að hann kæmi heim aftur
að prédika um tækni og frain-
farir og starfa í þeim anda —
og hafnaði að lokum í Undra-
landi. — Það var táknrænt fyrir
líf hans.
Stefán B. Sigurðsson var 26
ára að aldri, þegar hann lagði
af stað í hópi útflytjenda frá
Austfjörðum til Ameríku. Það
var sumarið 1887. f Reykjavík
hafði hann kynnzt Jóni Ólafs-
syni, skáldi og ritstjóra, lært hjá
honum ensku og fregnað hjá
honum eitt og annað úr Nýja
heiminum. Gerðist Stefán túlk-