Úrval - 01.12.1961, Side 118
126
ÚR VAL
meðal auðugra GySinga í borg-
inni og afhentu nazistum það
sem eins konar fyrirfram-
greiðslu. Þeir lofuðu hins vegar,
að fyrir nokkrar milljónir doll-
ara til viðbótar skyldi farið
mjög hægt í sakirnar með brott-
flutninginn.
En Eichmann brá við hart
og sendi von Wislicený barón
út í sveit til að sópa Gyðingum
saman til flutnings úr landi.
Eftir það hélt hann til Berlínar
að ráðgast við Himmler. Ilimml-
er var nú farinn að gera sér
grein fyrir því, að leikurinn var
tapaður hjá nazistum. Reyndi
hann því að koma sér persónu-
iega í mjúkinn hjá bandamönn-
um með því að bjóðast til þess
á laun að „selja“ þeim eina
milljón Gyðinga. Var Eichmann
falið að koma tilboði þessu á
framfæri fyrir milligöngu hjálp-
arfélagsins i Rúdapest, en það
stóð í sambandi við Tyrkland,
sem var hlutlaust ríki.
Þegar Eichmann kom til baka,
kvaddi hann Brand til viðtals
i skrifstofu sinni honum til
mestu furðu.
„Þér vitið, hver ég er,“ hóf
Eichmann máls. „Ég hefi kvatt
yður hingað til þess að ræða um
viðskipti við yður. . . Ég er fús
til að selja yður eina milljón
Gyðinga .. . Líf fyrir peninga,
peninga fyrir líf. Hverjum óskið
þér að bjarga? Getnaðarfærum
karlmönnuin? Konum, sem geta
átt börn? Gömlu fólki — eða
börnum? Setjizt niður, og látið
mig heyra.“
Eichmann útlistaði nánar hug-
myndina að þessum viðskiptum.
í trausti þess, að Gyðingar gætu
aldrei fullnægt kröfum þeim,
er fram voru settar, hafði hon-
um hugkvæmzt að heimta „vör-
ur“ í skiptum fyrir mannslíf.
Það voru tíu þúsund herbifreið-
ir og tekið skýrt fram, að þær
skyldu einungis notaðar á aust-
urvígstöðvunum — gegn Rúss-
um. Ráðguðust þeir nú um það,
Jóel Brand og Kastner, hvort
þeir ættu að flytja bandamönn-
um þetta tilboð. Jafnframt á-
kváðu þeir að ganga til samn-
inga við nazista í þeirri von,
að meðan á þeim stæði, yrði
endir bundinn á aftökur og
brottflutninga. Siðan flaug
Brand til Miklagarðs í þýzkri
flugvél, en Kastner fékkst við
Eichmann heima í Búdapest.
Eichmann hafði lofað að fara
hægt í sakir við Gyðinga, með-
an Brand væri í Tyrklandsför-
inni. En nokkru síðar barst
Kastner til eyrna, að brottflutn-
ingur þeirra væri siaukinn og
þeim safnað saman i gamalli
múrsteinaverksmiðju rétt við
járnbrautina. Hafði bróðir hans,
tengdafaðir og fleiri skyldmenni