Úrval - 01.12.1961, Side 153
SKARÐ í VÖR OG GÓM
161
til að gliðna sundur, og verður
þvi erfiðara að loka skörðunum,
því lengra sem líður frá fæð-
ingu. Algengast er þvi að loka
varaskarðinu á aldrinum frá
8—10 vikna, sé barnið að öðru
leyti í góðri framför. Bezt er
þó að forðast þann tima ársins,
er kveffaraldrar eru tiðastir. Þá
er venjulegast að loka fremsta
hluta harða gómsins um leið og
vörinni. Vörin mótar tanngarð-
inn og þrengir skarðið smám
saman og lokar því. Ef skarðið
er tvöfalt, má loka öðru skarð-
inu fyrr eða báðum i senn eftir
atvikum.
Það er að jafnaði nokkrum
erfiðleikum bundið að næra
barn með slcarð í góm og þó
sérstaldega, ef skarðið nær bæði
gegnum góminn og vörina. Barn-
ið getur ekki sogið, og fæðu,
sem því er gefin, hættir við að
fara upp í gegnum skarðið og
út um nefið. Börn þessi koma
því oft vannærð á sjúkrahús til
aðgerðar. Bezta ráð er talið að
láta börn strax hafa pela og
nota þá túttu, sem er lengri en
venjulega og hafa gatið á henni
allstórt, um 2—3 mm. í þver-
mál. Ef haldið er á barninu,
meðan ]iví er gefið að drekka,
gengur oftast auðveldlega að
næra það, sé þessi aðferð notuð.
Tvær meginstefnur eru aðal-
lega ráðandi um aðferðir við að
loka skarði í vör. Annars vegar
eru þeir, sem vilja loka skörð-
um á sem einfaldastan hátt í
byrjun og gera ráð fyrir að laga
vörina siðar eða áður en skóla-
ganga byrjar. Hins vegar eru
þeir, og þar á meðal sá, er
þetta ritar, sem vilja reyna að
skapa eins fullkomna og eðli-
lega vör og unnt er, þegar við
fyrstu aðgerð, en slikar aðgerð-
ir fela í sér þá hæt'tu, að nokkru
er fórnað af vef úr vörinni og
því erfitt að laga síðar það, sem
aflaga kann að fara við fyrstu
aðgerð. Mikla nákvæmni þarf
við undirbúning og framkvæmd
þessara aðgerða, en árangur er
líka mjög góður ef vel tekst til.
Samfara skarði í vör, jafnvel
])ó að vörin sé ekki alveg klofin,
er skekkja á nefi og því meiri
sem skarðið er stærra. Nefvæng
ur er skakkur og nösin flöt,
miðsnesið er fast við heilu hlið-
ina á kjálkanum, og nefið hefur
þvi tilhneygingu til að hallast
frá skarðshliðinni. Sé vörin tví-
klofin, er miðsnesið venjulega
nokkurn veginn miðstætt, og
fram úr þvi skagar miðhluti
vararinnar og efri kjálkans mis-
munandi langt og mismunandi
stór. Nefið verður því flatt og
breitt.
Sumir hallast að því að gera
enga tilraun til að laga nefið
við fyrstu aðgerð aðra en þá