Úrval - 01.06.1971, Síða 26
24
ÚRVAL
Ötal börn nndir skóíaaldri liíða óbætanlegt tjón vegna skorts
á nauðsynlegri Iwgrænni aðstod. Á fyrsln áirunum er lagður
hornsteinn að vitsmunaþroska barnsins.
Hverjar eru orsakir
skertra námshæfileika
barna?
iisiímm
*
*
*
Þ
egar lítið barn stendur
sig ekki eins vel og
búizt er við, þegar það
virðist til dæmis vera
svolítið seint til þess
að byrja að tala, þá
ríkir þögn um það líkt og að yfir-
lögðu ráði. Allir vona, að „barnið
muni vaxa upp úr“ þessum byrjun-
arerfiðleikum. Og venjalega ráðið
er fólgið í þessu eina orði: „Bíðið“.
En móðir átta ára gamals drengs,
sem ég veit um, er ekki á sama
máli. Hann var haldinn leyndum
heyrnargalla, og þessi heyrnargalli
fannst ekki fyrr en í fyrra, löngu
eftir að tímaskeið það var útrunn-
ið, sem er langbezt til þess að læra
mál á. Þess í stað hvetur hún for-
eldra til þess að láta barnalæknana
ekki í friði, meðan einhver grunur
leynist um, að eitthvað sé í ólagi,
hvað snertir þroska barnsins. „Ef
Eftir MAMA PINES
þið hafið hinn minnsta grun um, að
þroski barnsins ykkar sé ekki eðli-
legur, krefjizt þess þá, að barnið sé
rannsakað ýtarlega og á því gerðar
sérstakar prófanir eins fljótt og
mögulegt er, hvað snertir heyrn,
sjón og þroska taugakerfis, svo sem
taugaviðbragða, o. s. frv. Barnið get-
ur orðið vanþroska, ef þið bíðið of
lengi.“
Því var eins farið fyrir þessari
konu og mörgum öðrum foreldrum.
Hana hafði grunað, að eitthvað væri
að barninu hennar. Hún fór reglu-
lega með Jimmy litla í læknisskoð-
un, en læknirinn notaði aðeins tón-
kvísl til þess að prófa heyrn hans
með, og drengurinn gat einmitt
heyrt þá sérstöku tíðni. Því beið
móðirin og vonaði, að þetta lagað-
ist. Og skóli og kennarar Jimmy
biðu einnig, þangað til hann var
orðinn neðstur í bekknum. Þá fyrst
— Readers Digest —