Úrval - 01.06.1971, Síða 31
IiVERJAR ERU ORSAKIR SKERTRA . . .
29
að læra það, sem það heyrir, eða
það, sem það sér?
,,Þess konar prófun getur líklega
hjálpað til þess að komast að því,
hvaða námsaðstæður hæfa bezt
hverju barni og munu því veita
beztan árangur“, segir dr. Ozer. „Ef
það getur gert góðan greinarmun
á hljóðum, en því gengur aftur á
móti illa við ýmislegt, sem grund-
vallast á sjónskynjun, mun það eiga
auðveldara með að læra að lesa í
bekk, þar sem kennt er eftir hljóð-
aðferð, því að hæfileikar þess eru
mestir á því sviði.“ Hann leggur
áherzlu á, að það sé ekki takmark-
ið að gera börnin að lestrar- og
skriftarvélum, heldur að skapa þeim
aðstæður, sem munu auka náms-
getu þeirra.
ÞAÐ, SEM FORELDRAR
GETA GERT
Viðleitnin til þess að finna sem
allra fyrst skynjunargalla og hindr-
anir hjá börnum eflist stöðugt og
verður árangursríkari, eftir því sem
fleira fólk gerir sér grein fyrir
mikilvægi áranna á undan fyrsta
skólaárinu, hvað nám snertir. í
sumum skólum er nú námsgeta allra
barna prófuð, áður en þau byrja í
smábarnaskóla eða jafnvel í leik-
skóla. Fyrir fylkisþingi Massachu-
setfsfylkis liggur nú lagafrumvarp
um stofnun skipulagðs kerfis til
þess að finna börn, sem eiga í
vændum mikla námsörðugleika
vegna skynjunargalla, og hjálpa
þeim, þ. e. fvrst og fremst þau, sem
líkleg eru til að verða haldin heyrn-
argölium (vegna þess að þau fædd-
ust fyrir tímann eða mæðurnar
fengu rauða hunda á fyrsta skeiði
meðgöngutímans eða af öðrum
ástæðum). Kveður lagafrumvarp
þetta svo á um, að öll slík börn
skuli skoðuð og prófuð ókeypis
af mjög færum sérfræðingum í
meiri háttar lækningamiðstöð og
slíkar prófanir skuli síðan endur-
taka með þriggja mánaða millibili,
þangað til barnið nær tveggja ára
aldri.
Ríkisstjórnin hefur eflt þessa
hreyfingu með því að veita 1 millj-
ón dollara styrk í september árið
1968 til þess að hrinda í framkvæmd
víðtækri áætlun um skoðun og með-
höndlun fatlaðra barna, allt frá fæð-
ingu til átta eða níu ára aldurs.
Samkvæmt áætluninni er gert ráð
fyrir 75—100 slíkum kynningarmið-
stöðvum, sem setja á á laggirnar á
þriggja ára tímabili víðs vegar um
land.
En fæstar þessara áætlana hafa
verið framkvæmdar ennþá, og þess
vegna er því þannig farið í flest-
um héruðum, að aðalábyrgðin á því,
hvort tekst að finna skynjunargalla
snemma á fvrsta æviskeiði barns-
ins, hvílir á ykkur foreldrunum. Ef
vafi leikur á slíku, verðið þið að
krefjast þess, að barnið verði próf-
að sérstaklega og meðhöndlun hefj-
ist hið allra fyrsta. Sérfræðingar
mæla eindregið með eftirtöldum
atriðum:
Skoðun nokkrum mánuðum eftir
fæðingu til bess að leita að og finna
alvarlega skerta heyrn og augn-
galla, sem kynnu að gera það nauð-
synlegt, að barnið yrði skorið upp
sem fyrst.
Mjög ýtarlegri skoðun og reglu-