Úrval - 01.06.1971, Qupperneq 37
BLÓÐTAPPl — HINN DULARFULLI MORÐINGI
35
bara með vissu millibili til blóð-
rannsókna. Sjúklingurinn er þá oft
látinn fá sérstakt „neyðarmeðhöndl-
unarskírteini“, þar sem það er tek-
ið fram, að hann sé í blóðþynning-
armeðhöndlun. Skírteini þetta, sem
sjúklingurinn ætti alltaf að bera á
sér, skýrir frá niðurstöðum rann-
sóknarstofu, hvað sjúkdóm hans
snertir, og þar stendur einnig nafn
og heimilisfang sjúkrahúss hans og
læknis og prentaðar leiðbeiningar
um, hvernig stöðva skuli blæðingar,
ef sjúklingurinn verður fyrir slysi.
Athyglisverðustu framfarirnar í
blóðtappameðhöndlun eru fólgnar í
uppgötvun efnis eins, sem getur
leyst upp blóðtappa, sem þegar hafa
myndazt. Efni þetta fæst úr þvagi,
og var nýlega skýrt frá uppgötvun
þessari. Efni þetta er hvati, sem
kallast ,,urokinase“, og komu lækn-
ingareiginleikar þess skýrt í ljós í
vandlega skipulagðri rannsóknar-
stofurannsókn á 160 sjúklingum. Við
rannsóknir þessar, sem „Hjarta- og
lungnastofnun Bandaríkjanna“
gekkst fyrir, „voru blóðtappaeyð-
ingareiginleikar efnis í fyrsta skipti
sannaðir afdráttarlaust með með-
höndlun við blóðtappa í mönnum,"
eins og dr. Sol Sherry, forstöðu-
maður Heilsuvísindamiðstöðvar
læknadeildar Templeháskólans,
komst að orði, en hann er einn
þeirra manna, sem framkvæmdu
rannsóknir og prófanir þessa efnis.
Dr. Sherry nefnir þessa þætti til
stuðnings nytsemi „urokinase“: Það
er hægt að gefa sjúklingum það
með sírennsli í æð. Það myndar
ekki mótefni í líkamanum, og því
er hægt að nota það æ ofan í æ.
Helztu neikvæðu áhrifin eru þessi:
sjúklingum, sem gefið hefur ver-
ið urokinase, hættir frekar við blæð-
ingum og þá alvarlegri blæðingum
en sjúklingum, sem fengið hafa
önnur blóðþynningarefni.
En ennþá önnur lausn kann að
vera á næstu grösum. í Frakklandi
eru laukur og graslaukur algeng
lyf meðal bænda gegn blóðtöppum
í fótum hesta. Enskir vísindamenn,
sem höfðu þessa staðreynd í huga,
hafa staðfest, að venjulegur laukur
býr í rauninni yfir vissum hæfi-
leika til þess að leysa upp blóð-
tappa. Vandinn er nú bara sá að
komast að því, hvernig hann getur
það og hver ástæðan er fyrir því,
að hann getur það.
Fyrst skemmdur sætsmári reynd-
ist fá svo stórkostlega læknisfræði-
lega þýðingu fyrir manninn, hví
skyldi hinn lítilmótlegi laukur ekki
einnig vera fær um það?
☆
Ef gestir reykja á 'heilsuhæli grænmetisæta í Cuernavaca í Mexíkó,
verða þeir að borga 50 dollara til viðbótar dvalarkostnaði. En þeir,
sem tyggja tóbak eða taka í nefið þurfa ekki að greiða þetta gjald
„vegna þess að þeir eitra aðeins fyrir sjálfa sig, en ekki aðra."
CP.