Úrval - 01.06.1971, Qupperneq 75
HANN VEKUR ÞÁ TIL LÍFSINS Á NÝ
73
ar, að Maling hóf núvérandi starf
sitt. Hann vann sem efnafræðing-
ur á rannsóknarstofu grammófón-
plötufyrirtækis eins í Aylesbury í
Englandi fyrir áratug, en eyddi
nokkru af frítíma sínum til þess að
hjálpa lömunarsjúklingum við Stoke
Mandevillesjúkrahúsið. Kvöld eitt
sá hann ungan mann, sem hafði
hálsbrotnað á vatnaskíðum og var
lamaður frá hálsi og niður í tær
og hafði að mestu leyti misst rödd-
ina. Það var rétt hægt að greina
það með erfiðismunum, hvað hann
sagði. Hann hafði örlitla hreyfing-
argetu í höfðinu, sem nægði rétt
aðeins til þess að gera honum fært
að blása í lögregluflautu, sem hjúkr-
unarkonurnar höfðu hengt um háls
honum, svo að hann gæti kallað á
þær, þegar hann þarfnaðist þeirra.
Maling datt nokkuð í hug, er hann
sá flautuna. Hvers vegna ættu fatl-
aðir endilega að þurfa að nota
hendur eða fætur til þess að stjórna
vélum? Hvers vegna ættu þeir ekki
að geta stjórnað þeim með munn-
hreyfingum?
Hann útbjó tæki, sem hægt var
að stjórna með því að blása svo-
lítið í pípu eða sjúga hana. Munn-
stykki pípunnar leit út eins og
vindlingamunnstykki. Með því að
„blása“ eða „sjúga“ í vissan tíma
gat jafnvel sá, sem þurfti að nota
öndunartæki, stjórnað útbúnaði,
sem opnaði og lokaði hurðum,
hækkaði og lækkaði rúm, kveikti
á ljósum og sjónvarpi og skrúfaði
frá hita. En útbúnaður þessi var
jafnvel enn þýðingarmeiri fyrir þá,
sem gátu ekki talað, því að það var
hægt að nota hann til þess að
„skrifa“ á rafritvél. Með einföld-
um „lykli" var hægt að ná 40 orða
hraða á mínútu á þennan hátt.
Maling velti því fyrir sér, hvað
hann ætti að kalla þessa uppfinn-
ingu sína. Hann kallaði hana: „Val-
tæki, stjórnað af sjúklingi“ (Pati-
ent Operated Slector Mechanism
eða POSM). Þegar upphafsstafir
orðanna voru bornir fram í sam-
hengi, hljómaði það sem POSSUM.
Þar eð „possum" þýðir „ég get“ á
latínu, virtist nafnið mjög viðeig-
andi, og það varð úr, að útbúnað-
urinn hlaut nafnið ,.POSSUM“.
RAFEINDAVÍSINDIN KOMA
TIL BJARGAR
Maling eyddi öllum kvöldum og
helgum í að útbúa tæki þessi, og
það tók hann rúmt ár að fullgera
þau. Þegar því var lokið, var Paul
Bates fenginn til þess að sýna notk-
un þeirra í sjónvarpinu. Fatlað
fólk, sem horfði á þennan dagskrár-
lið, varð stórhrifið, er það sá,
hversu mikla möguleika tæki þetta
gaf fötluðum til þess að stjórna
ýmsu í nánasta umhverfi og að
verða óháðir öðrum að vissu marki.
Þetta varð einnig til þess, að „Sjóð-
ur til rannsóknar á fötlunarsjúk-
dómum“ veitti Maling nokkra
styrki um 5 ára bil til frekari rann-
sókna og tilrauna. Og þessir styrk-
ir gerðu honum fært að hætta öðr-
um störfum og vinna eingöngu að
endurbótum á „Possum“-tækjunum
í Stoke Mandevillesjúkrahúsinu.
Maling og lítill hópur samstarfs-
manna bjuggu til ýmsar gerðir
þessara tækja, sem nota mátti í
mismunandi tilgangi. Með hjálp