Úrval - 01.06.1971, Side 80
78
URVAL
----------------------------N
Hunn er Sherlock Holmes
20. aldar.
Ilann er eklci lög-
reglumaðiir eins
og Holmes var, heldur
geysisn jall
sérfræðingur í réttar-
læknisfræði.
Eftir
JAMES STEWART
GORDON
Úrdráttur úr
CLIPPER
Hinn
nýi
Sherlock
Holmes
v___________y
rú Durand-Deacon
*
*
*
*
•V Ni/'']/ vp vy-
'!n A< VInVIn /*\
er
ekki lengur til. Ég
eyddi henni með sýru,“
sagði litli maðurinn
við yfirlögregluþjón-
inn frá Scotland Yard-
rannsóknarlögreglunni og glotti við.
„En hvernig getið þér sannað morð,
ef það er ekki um neitt lík að
ræða?“
John Haigh hafði talið frú Dur-
and-Deacon, sem var rík ekkja, á
að koma til geymsluherbergis eins
í Crawley í ‘ Englandi, sem hann
hafði á leigu. Þar skaut hann hana
í hnakkann og rændi öllu fémætu,
sem hún hafði meðferðis. Svo setti
hann hana ofan í stáltunnu, sem var
full af brennisteinssýru. Og þegar
líkið hafði leystst upp að nokkrum
tíma liðnum, velti hann tunnunni
á hliðina úti í húsagarðinum og
fylgdist með því, meðan leifar frú
Durand-Deacon sigu niður í mölina.
En það var rangt af honum að
álíta, að lögreglan þyrfti á líki að
halda til þess að draga hann fyrir
dómstólana. Skömmu eftir játningu
Haighs var dr. Keith Simpson frá
Lundúnaháskóla að skoða morð-
staðinn, en hann hefur síðar orðið
helzti sérfræðingur í heimi í réttar-
læknisfræði. Hann potaði oddinum
á regnhlífinni sinni á ýmsa staði að
venju. Skyndilega beygði hann sig
niður, tók upp tvær örlitlar stein-
völur, sem höfðu marga fleti, og
rannsakaði þær nákvæmlega með
stækkunargleri. „Gallsteinar úr
manneskju,“ sagði hann. „Rannsak-
ið staðinn mjög nákvæmlega.“
Svo fann lögreglan þar einnig
agnir úr rauðu veski og gervitönn-