Lögfræðingur - 01.01.1900, Page 55
Dagsverk til prests.
Samið hefur
Páll 15 rie m.
Dagsverk til prests kemur hvergi fyrir í fornlögum
vorum. Áður en landið komst undir konung þekktist það
eigi. þaö er fyrst á 14. öld, að dagsverk er nefnt hjer á
landi, sem tekjugrein fyrir kirkjur. pannig er talað um
það í máldaga kirkjunnar í Steinum undir Eyjafjöllum
(1332 og 1371)x) og máldaga kirkjunnar í Dyrhólmum í
Mýrdal (1340).1 2) En þessi dagsverk munu hafa fallið nið-
ur um siðabótina, eins og margar aðrar tillögur til kirkna,
án þess að neitt kæmi í þeirra stað. Dagsverk til presta
nú á tímum eiga ekkert skylt við þessi kirknadagsverk,
heldur eru þau, ef svo má segja, af útlendum uppruna.3 *)
1) I máldaga Steinakirkju segir svo: A11i r hændur, sem tíða-
sóku eiga í Steinakirkju, lúka þangat dagsverk eins vinnu-
manns, sérhver þeirra, ok hafa lokit fyrir Mikaelsmessu á
hverjum tólf mánuðum." (ísl. fbs. II. 680, sbr. III. bls. 261)
2) I máldaga Dyrhólmakirkju segir svo: „jþangat skal vinna
dagsverk um engiverki, ok fá sér sjálfir verkfæri, afþeimbæj-
um, er þangat liggja undir, ok hafa lokitfyrir Maríumessu.11
(ísl fornbs. II. bls. 742).
3) Sbr. hið mikla og fróðlega rit K. Maurers um isl. kirkjurjett
í Krit. Vierteljahrsschrift. VII. bls. 411.