Lögfræðingur - 01.01.1900, Síða 64
64
Páll Briem.
karlar, tíunda skuli fje sitt, ef tíu 6 álna aura eigi skuld-
laust.ii1) Bjarni amtmaður Thorsteinsson tekur það og
fram 1819, að í konungsbrjefinu 1817 sje átt við ákvæð-
in í Kristinnrjetti Árna biskups.2) Ennfremur er Jón
Pjetursson háyfirdómari á sömu skoðun.3)
Vjer verðum því að athuga fyrirmæli Kristinnrjettar-
ins um tíund, og eru þau svo: »J>at er at lögum skyld-
ugt, at menn skulu tíunda fé sitt allt lögtíund hér á landi.
En þat er lögtíund, at sá maðr greiði 6 álna eyri á tólf
mánuðum, sem hann á tíu tigi6 álna aura. Sá maðr, sem
hann á tíu 6 álna aura skuldlausa fyrir utan hversdagsligan
búning, skal greiða alin vaðmáls..........Bús afleifar er eigi
skylt at tíunda um vár, efhann heldr búi sínu, en ef hann
bregðr eða sell hann úr búi, þá skal hann þat tíunda. . . .
Eigi skal ómögum fé ætla, þó at hann eigi fram at færa. En
þó at hann hafi minna fé, ef hann á tíu aura skuldlausa,
þá skal hann tíund af gera, hvárt sem hann er bóndi eða
griðmaðr, nema hann eigi ómaga þá, sem hann verðr á
verkum sínum fram at færa.4)
Samkvæmt þessum fyrirmælum er manni skylt að
tíunda eigur sínar, ef hann á 60 álna virði, skuldlaust,
1) Klausturpósturinn. 1718. bls. 56. f>að hefur að þessu leyti
enga þýðingu, þótt M. St. nefni Gissurarstatútu, því að
fyrirmæli hennar um tíund voru tekin upp í Kristinnrjett
Árna biskups.
2) Bjarni Thorsteinsson, Om kongelige og andre off. Afgifter.
Kh. 1819. bls. 111.
3) Jón Pjetursson, ísl. kirkjurjettur. Rvík. 1863. bls. 236, 1880.
bls. 230.
4) Norges gamle Love. Ohristiania. 1890. V. bls. 32—33, og
Kristinn réttr inn nýi eðr Árna biskups. Hafniæ. MDCO-
LXXYII. bls. 80—85.