Lögfræðingur - 01.01.1900, Page 125
Dómstólar og rjettarfar
eptir
K1 e 111 e n s .1 ó n s s o n.
I. DÓMSTÓLAR.
Hjeraðsdómarar. íslandi er frá fornu fari skipt
í ákveðin afmörkuð svæði, sem kallast sýslur, og hefur
einn maður dómsvald í sýslunni, og nefnist hann sýslu-
maður. Á síðari tímum hafa stærri kaupstaðir landsins
fengið lögsögn nt af fyrir sig, og heitir dómarinn í þeim
bæj arfógeti.
í>essir kaupstaðir eru: Eeykjavík, Akureyri, ísafjörð-
ur og Seyðisfjörður, en einungis í hinum fyrst nefnda er
sjerstakur dómari; í hinum kaupstöðunum eru sýslumenn-
irnir í sýslum þeim, er kaupstaðirnir lágu áður í, bæjar-
fógetar. Alls er í landinu 21 sýsla, en af því nokkrar
þeirra eru sameinaðar, þá eru einungis 17 sýslumenn, og
eru þrír af þeim einnig bæjarfógetar, og svo bæjarfógetinn
í Eeykjavík; eru því alls 18 hjeraðsdómarar í landinu.
Sýslumenn eru einnig oddvitar sýslunefndanna, og
hafa því af hendi hins opinbera tilsjön með því, að hin
umboðslega stjórn sýslunnar fari vel og skipulega fram. I
kaupstöðum eru bæjarfógetarnir formenn bæjarstjórnarinn-
ar og hafa þar á bendi liinn sama starfa og sýslumenn í
sýslunefndunum.