Lögfræðingur - 01.01.1900, Side 128
128
Klemens Jónsson.
dómi sínum, eins og venja er til um aðra dóma. Dómur
skal uppkveðinn jafnskjótt og hin munnlega málsfærsla er
búin, og áður en byrjað er á næsta máli,
Hæstarjettardómur er endileg úrslit í hverju máli,
sem eigi má raska eða breyta, en þó hefur það komið fyr-
ir, að það hefur orðið uppvíst, að saklaus maður hafi feng-
ið áfellisdóm við hæstarjett, og hefur konungur þá skipað
svo fyrir, að hæstirjettur skyldi taka málið fyrir á ný, og
kveða upp nýjan dóm í því, eptir fram komnum upplýs-
ingum.
II. EINKAMÁL.
1. Venjuleg málsmeðferð. Aðgreiningin milli þess,
hvort mál sje einkamál eða sakamál, er eigi, eins og menn
skyldu ímynda sjer, fólgin í því, að öll þau mál sjeu sakamál,
sem miða til þess að fá mann dæmdan í hegningu. |>etta
er alls eigi svo, heldur eru einkamál eigi að eins þau, er
varða rjettindi og skyldur manna, heldur einnig ýms mál,
sem miða til þess að fá mann dæmdan í hegningu, og sem
sá, er fyrir órjettinum verður, sjálfur verður að höfða; slík
mál eru t. a. m. meiðyrðamál, mál út af því, að friði
manna er raskað, eða friðhelgi heimilisins, eða rifin upp
brjef manna, ef maður sýnir öðrum líkamlegt ofbeldi með
liöggum og barsmíði, án þess þó að veita honum áverka
eða annan skaða, skemmir eign hans, eða tekur ólöglega
sjálfur rjett sinn, þá verður sá, sem misgjört er við, sjálf-
ur að leita rjettar síns. og hann verður að gjöra það und-
ir einkamáli.
Nú vill maður höfða einkamál, og skal hann þá byrja
með því, að leita til sáttanefndarinnar í þvi umdæmi, sem
mótpartur hans býr í, eða ætla má að hann eigi heima í.
pessari sáttanefnd, sem eru tveir menn útnefndir af amt-