Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2014, Síða 69
Hvaóa eiginleika og færni þurfa góðir háskólakennarar aó hafa?
verði að gera nemum kleift að finna upp-
sprettu eigin hugrekkis, þrautseigju og
samúðar og að þróa verði gæðakerfi sam-
kvæmt þeirri sýn að menntun byggist á
samvinnu milli nema og kennara.
Mikilvægi kennslufærni góðra háskólakennara
Mikið hefur verið ritað um kennslufærni
sem, í háskólasamhengi, felst í stuttu máli
í faglegri þekkingu, skilningi og reynslu;
að kunna að koma námsefninu vel frá sér
til nema; að gera kröfur til sín og nem-
enda sinna; að vera sanngjarn og forðast
innihaldslausa einkunnagjöf; ásamt því
að forðast ofnotkun á fyrirlestraforminu á
kostnað umræðna (Sigríður Halldórsdótt-
ir, 1990; Noddings, 1988). Smeyers (2005)
bendir á að Sókrates sagðist vera fávís og
neitaði því að hann væri kennari. Hann
sagði nemum ekki svörin þótt hann vissi
þau heldur lét þá uppgötva þau sjálfa.
Sú staðhæfing hans að hann vissi hvorki
hvað dygðir væru né væri hann fær um
að kenna um dygðirnar var aðferð hans
við að efla áhugahvöt áhugalausra nema.
Að lokum má í þessu samhengi nefna að
Heidegger (1968) sagði að það væri mun
erfiðara að kenna en að læra því það að
kenna fælist í því að leyfa námi að eiga sér
stað (e. to let learn) og það geti verið erfitt
fyrir suma kennara.
Mikilvægi umhyggju fyrir nemum
Nel Noddings hefur verið óþreytandi að
minna kennara á mikilvægi umhyggju í
allri kennslu. Noddings (1986) heldur því
fram að sönn umhyggja skapi grunn að
því sem hún kallar siðferðilega umhyggju
(e. ethical caring) sem felst í því að vinna
stöðugt að velferð hins aðilans, þ.e. nem-
enda og náms þeirra í þessu tilviki. Hún
telur að kennarar eigi að stuðla að heild-
rænum þroska nema og heldur því fram
að kennarar verði að bera sanna umhyggju
fyrir nemum sínum til að raunverulegt
nám eigi sér stað. Eins og margir mennt-
unarfræðingar vitnar hún í Aristóteles sem
sagði að samband kennara og nema væri
siðferðileg útgáfa af vináttu (e. moral type of
friendship) og eins konar gjöf; umhyggju-
samir kennarar komi fram við nema eins
og nokkurs konar vini sína. Noddings
telur að með umhyggju að leiðarljósi sé
eðlilegt að spyrja: hvaða áhrif hefur þetta
á persónurnar sem ég er að kenna? Hvaða
áhrif hefur þetta á það umhyggjusamfélag
sem við erum að leitast við að skapa hér?
Fagfólk ætti ekki aðeins að byggja starf
sitt á sannreyndri þekkingu heldur einnig
á kenningum og byggja þarf kennslu á
kenningargrunni ef hún á að vera fagleg.
Tilgangur þessarar greinar er að kynna
kenningu um hinn góða háskólakennara
sem lykilaðila í gæðum sem umbreytingu
og ögra þannig því viðhorfi, sem virðist
ríkja í umræðunni um gæði í háskólanámi,
að háskólakennarar séu sjálfir ekki svo
mikilvægir í því samhengi. Markmiðið er
að kynna kenningu um góða háskólakenn-
ara sem lykilpersónur í gæðum. Spurn-
ingin sem leitast er við að svara er: hvaða
persónulega eiginleika og færni þurfa góðir
háskólakennarar að hafa til að vera færir um
að efla háskólanema og taka þátt i umbreytingu
þeirra?
67