Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2014, Page 74
Sigríður Halldórsdóttir
Sjálfsþekking er grunnur að dygðum og
lykillinn að dygðugu og merkingarbæru
lífi. Hún er því mikilvægur þáttur sam-
kvæmt kenningunni.
Akveðni. Góðir háskólakennarar eru
ákveðnir og þora að rökstyðja eigin við-
horf án árásargirni eða undirgefni - án
þess að setja sig í valdsmannslegar stell-
ingar eða leyfa öðrum að beita þöggun; og
þeir virða eigin mörk og annarra.
Sköpunarkraftur. Góðir háskólakenn-
arar eru skapandi og óhræddir við að
nota nýjungar í kennsluaðferðum til að
efla nám háskólanema. Góðir háskóla-
kennarar auka skilning nema á nýsköpun
í ýmsu samhengi og hvetja til náms sem
auðveldar háskólanemum að tileinka
sér nýsköpun sem hentar námi þeirra og
framtíðarstarfssviði.
Meginþættir ífærni
umbreytandi háskólakennara
Að vera góður háskólakennari og lykil-
persóna í gæðum sem umbreytingu er
flókið hlutverk og mikilvægt er að skoða
færni viðkomandi, hvern þátt fyrir sig.
Samkvæmt kenningunni hafa umbreyt-
andi háskólakennarar lykilfærni á sjö svið-
um: samskiptafærni, kennslufærni, um-
hyggjufærni, tilvistarfærni, siðferðilega
færni, færni í að efla og styrkja háskóla-
nema og færni í ígrundun og sjálfsrækt
sem persóna og sem háskólakennari. Góð-
ir háskólakennarar eru færir um að styrkja
og efla háskólanema með uppbyggjandi
samskiptum og samvinnu við þá. Þessi
uppbyggjandi samskipti og samvinna við
nemana er meginatriðið sem skilur á milli
góðra háskólakennara og þeirra sem eru
4. mynd. Lykilfærni hins góða háskólakennara.
það ekki samkvæmt kenningunni. Skila-
boð góðra háskólakennara eru: „Vinnum
saman að námi þínu og umbreytingu." 4.
mynd sýnir yfirlit yfir lykilfærnisvið um-
breytandi háskólakennara. í kenningunni
er litið svo á að hver þessara lykilþátta hafi
áhrif á hina þættina þar sem í raun og veru
er um eina heild að ræða.
Samskiptafæmi. Góðir háskólakenn-
arar eru félagslega færir og hafa sam-
skiptafæmi sem greina má í tvo þætti, tjá-
skiptafærni og tengslafæmi. Með tjdskipta-
færni er átt við færni í að hafa fmmkvæði
að samskiptum við háskólanema, færni í
tjáskiptum og virkri hlustun. Með tengsla-
færni er átt við færni í að tengjast háskóla-
nemum sem er grunnurinn að samvinnu
sem byggist á gagnkvæmu trausti. Góðir
háskólakennarar eru færir um að byggja
„brúna" yfir til háskólanema og að skapa
gagnkvæmt traust þar sem háskólanem-
amir finna að þeir mega greina kennur-
unum frá hindrunum í náminu þannig
að þeir geti bmgðist við til að fjarlægja
þær. Góðir háskólakennarar em einnig