Réttur


Réttur - 01.01.1958, Page 90

Réttur - 01.01.1958, Page 90
90 BÉTTBR Ný sókn var hafin í sveitunum. Bsendurnir voru ekki í skapi til að bíða þolinmóðir eftir iðnaði borganna ,sem þrátt fyrir mik- inn vöxt eftir 1949, var langt um megn að mæta hinni skyndilegu eftirspurn. Þeir fóru sjálfir að endurbæta landbúnaðarverkfærin, búa til nýjar og endurbættarstigdælur og vatnsleiðslur, smíðanýja plóga og hverfi og jafnvel sínar eigin dráttarvélar og aðrar vélar og framleiða eigin tilbúinn áburð. Þúsundir hugvitssamra og hagra bænda smíðuðu með frumstæðum verkfærum, oftast úr tré, ýms verkfæri og áhöld, sem margfölduðu afköstin. Mörg þeirra voru sérstaklega miðuð við ákveðna staðhætti, en fleiri voru til nota almennt og ruddu sér til rúms um land allt. í hverju þorpinu eftir annað, í hverju samvinnubúinu á fætur öðru risu upp verkstæði og verksmiðjur, þar sem bændurnir framleiddu sín eigin tæki, hjólbörur og kerrur, plóga og upp- skeruverkfæri ,jafnvel dráttarvélar, þar sem vélin ein var að- fengin. Gamlir hleypidómar, að iðnaður þyrfti endilega að vera stóriðnaður og ætti aðeins heima í borgunum, urðu að lúta í lægra haldi. Samhliða hinum vaxandi, nýtizkulega stóriðnaði blómgast nú annar iðnaður, sem stendur á grundvelli ævafornrar hefðar í handiðnaðinum og nýtur frjórrar hugkvæmni kínverskra hand- verksmanna. Þessi iðnaður u.ppfyllir nú þarfir, sem ekki er unnt að fullnægja á annan hátt, með því að framleiða með ófullkomn- um tækjum ýmsa nauðsynjahluti úr efniviði, sem ekki stenzt kröfur nýtízku iðnaðar. Maðurinn hefur alltaf verið aðal flutningatækið í Kína. í héruðum, þar sem allt að 60% vinnuaflsins var notað til burðar eingöngu, vegna aldagamallar kyrrstöðu og fátæktar, leystu „heimagerðar" hjólbörur og dráttarvagnar milljónir manna und- an burðinum og nú gat þetta fólk tekið þátt í hinum eiginlegu framleiðslustörfum. í sveitaþorpunum hefur hver fjölskylda, þ. e .a. s húsmóðirin, samkvæmt fornum venjum malað allt sitt korn daglega í frumstæðum kvörnum. Með því að endurbæta þessar kvarnir og smíða nýjar, sem önnuðu kornmölun fyrir margar fjölskyldur, var hægt að losa um þúsundir kvenna, er gátu tekið þátt í bústörfum eða unnið í hinum nýja iðnaði. Snemma vors komst skriður á þessa hreyfingu. Þá og um sum- arið þutu upp þúsundir slíkra verkstæða og verksmiðja eins og gorkúlur um allt Kína. Einnig var byggður mikill grúi einfaldra, gamaldags járnbræðsluofna. Ný þróun var hafin, ómetanlega mikilvæg fyrir framtíð Kína, hraðfara iðnvæðing hinna kín- versku sveitaþorpa, undanfari véla- og rafvæðingar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.