Réttur


Réttur - 01.01.1958, Page 94

Réttur - 01.01.1958, Page 94
94 R É T T U K ■ Bændur, verkamenn, menntamenn Sameignarhverfin eru nægilega stór til að leysa hin fjölþættu verkefni kínversku landsbyggðarinnar. í þeim eru venjulega nokkrir tugir þúsunda manna. En til eru þau, sem hafa yfir hundrað þúsund íbúa og á vissum svæðum hafa sameignarhverfin í heilum ömtum tekið upp nána samvinnu. Þau eiga langtum hægara með en samvinnubúin að nýta á hagkvæmasta hátt það vinnuafl ,sem kostur er á. Meðlimunum er skipt í framleiðslu- sveitir, einnig nefnd stjórnarumdæmi, sem annast ýmsar fram- leiðslugreinar. Þessum sveitum er svo aftur skipt í minni vinnu- flokka. Þeir hafa sitt fastákveðna verk að vinna, en hægt er þó að breyta til í brýnni nauðsyn og fela þeim önnur verk, sem mjög kalla að. í mörgum sameignarhverfum eru til vinnuflokk- ar, sem aðeins eru til aðstoðar þar sem vinnuafl vantar á hverj- um tíma, í landbúnaði, iðnaði, húsbyggingum o. s. frv. Þegar kom- izt er svo að orði, að í sameignarhverfunum sé „vinna skipulögð á hernaðarvísu", þá þýðir það hvorki annað né meira en að í þessum framleiðslusveitum og vinnuflokkum ríki sami vinnuagi sem ríkir í verksmiðjum hvarvetna í heiminum, þar sem haldið er uppi ákveðnum vinnuhraða og framleitt ákveðið magn af vörum. í sameignarhverfunum er þetta frjáls agi, meðlimirnir beygja sig undir þá stjórn, sem þeir sjálfir hafa kosið á lýðræðis- legan hátt og framkvæma fyrirmæli hennar eftir ýtarlegar um- ræður um almennar meginreglur framleiðslu og vinnuaðferða. Fjölbreytileiki sameignarhverfanna gefur meiri möguleika til framleiðsluaukningar á öllum sviðum. Verði t. d. allt í einu þörf fyrir rafala og stærri landbúnaðarvélar, en fjármagn vanti til kaupanna. þá hefur það reynzt gerlegt að útvega þá með því að flytja vinnuafl til framleiðslugreina, sem gefa skjótan arð. í einu hverfi Suður-Kína var t. d. komið upp sögunarverkstæði í þessu skyni. Á hinn bóginn er á annatímum hægt að flytja vinnuafl frá iðnaðinum til jarðyrkjustarfa. Þegar öll sameignarhverfin byggja verksmiðjur og starfrækja einhverskonar námur, þá þýðir það, að bilið milli landbúnaðar- og iðnaðarstarfa, milli verkamanna og bænda, hverfur smátt og smátt. Sama fólkið er hvorttveggja. Þegar hverfið sjálft rekur skóla, bæði fyrir börn og fullorðna, þar sem kennararnir eru líka bændur og verkamenn, þá þýðir það, að þetta skipulag brýtur smátt og smátt niður skilvegginn milli verkamanna anda og hand- ar. Sameignarhverfin munu smátt og smátt koma á sömu félags- legum réttindum og skapa meðlimum sínum sömu þægindi og fólk nýtur í borgunum og þar með vinr.a að því, að eyða munin- um á borg og sveit..
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.