Samvinnan - 01.03.1931, Page 141
Héðan og handan.
Ávarp frá fulltrúafundi
Alþjóðasambands samvinnumanna.
Á fulltrúafundi 1. C. A. (Alþjóðasambands samvinnu-
manna), sem haldinn var í París dagana 27. sept. til 2.
okt. s. 1., var meðal annars rætt um orsakir núverandi
alheimskreppu og hver væri bezta leiðin til þess að ráða
bót á henni. Fundurinn samþykkti viðvíkjandi þessu efni
eftirfarandi ávarp, sem ætlazt er til, að birt verði í sam-
vinnublöðum um heim allan:
„Fulltrúafundur I. C. A., sem kom saman í París með-
an hin einstæða fj ármálakreppa stóð yfir, sem gallar sam-
keppninnar hafa leitt af sér, lýsir yfir: Að leiðin úr nú-
verandi ógöngum sé sú, að almennt verði notaðar þær
grundvallarreglur, sem notaðar hafa verið í verzlunar- og
iðnaðarstofnunum hinna 60 milj. samvinnumanna, sem
mynda I. C. A.
Samvinnustefnan veitir hina einu viðunandi lausn frá
óreiðu samkeppninnar og einkahagnaðarins, sökum þess
að hún byggist á hagnaði almennings, útrýmingu einka-
hagnaðarins og gerir enda á misræminu milli hagnaðar
neytandans og framleiðandans.
Fulltrúafundurinn skorar því á öll félög í I. C. A. að
nota öll þau ráð, sem í þeirra valdi standa, til þess að sýna
yfirburði fjármálakerfis síns og mátt þess til að tryggja
æðstu hagsmuni almennings, meðal annars með því:
a. Að sýna hina mestu varúð, árvekni og hagsýni í inn-
kaupum og aukningu á vörubirgðum sínum.
b. Að selja félögum sínum allar nauðsynjar með sem